Hoppa yfir valmynd
23. nóvember 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 415/2022-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 415/2022

Miðvikudaginn 23. nóvember 2022

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 13. ágúst 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 19. maí 2022 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2021 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 197.478 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 19. maí 2022.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 13. ágúst 2022. Með bréfi, dags. 16. ágúst 2022, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 1. september 2022, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að þess sé krafist að kærandi endurgreiði Tryggingastofnun 197.478. kr. vegna tekna árið 2021. Farið sé fram á að þessi krafa verði felld niður þar sem kærandi megi hafa 2.400.000 kr. í tekjur á ári án þess að þær skerði ellilífeyri, sé greiddur skattur af þeim.

Kærandi hafi greitt skatt af þessum umframtekjum sem Tryggingastofnun byggi á.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2021.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljast tekjur samkvæmt II. kafla laga um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar til að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2021 hafi kærandi verið með ellilífeyri allt árið. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 197.478 kr. ofgreiðslu, að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar af skattframtali 2022 vegna tekjuársins 2021 hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Kærandi hafi fengið senda tillögu að tekjuáætlun þann 26. janúar 2021. Samkvæmt tillögunni hafi verið gert ráð fyrir að árið 2021 væru lífeyrissjóðstekjur kæranda 4.364.105 kr. og sameiginlegar tekjur þeirra hjóna 150.983 kr. í vexti og verðbætur. Kæranda hafi verið greitt samkvæmt þessari tekjuáætlun allt árið 2021.

Við bótauppgjör ársins 2021 hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með 4.798.101 kr. í lífeyrissjóðstekjur og sameiginlegar tekjur þeirra hjóna hafi verið 321.830 kr. í vexti og verðbætur. Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2021 hafi verið sú að kærandi hafi fengið ofgreitt í bótaflokkunum ellilífeyri og orlofs- og desemberuppbótum.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega eða hvernig þær séu skráðar á skattframtalið eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2021 hafi verið sú að kærandi hafi fengið 1.589.582 kr. greitt á árinu en hefði átt að fá greitt 1.301.504 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 197.478 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Í kæru hafi kærandi vísað til þess að hann megi hafa 2.400.000 kr. í tekjur á ári, án þess að þær skerði ellilífeyrinn.

Í 23. gr. laga um almannatryggingar segi að ellilífeyrisþegi skuli hafa 300.000 kr. almennt frítekjumark við útreikning ellilífeyris og 2.400.000 kr. sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna.

Það frítekjumark sem kærandi vísi til eigi einungis við um atvinnutekjur en kærandi hafi verið með lífeyrissjóðstekjur en um þær gildi hið almenna frítekjumark sem sé 300.000 kr. á ári.

Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2021.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2021.

Kærandi fékk greiddan ellilífeyri frá Tryggingastofnun á árinu 2021. Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með tilteknum undantekningum. Samkvæmt 1. mgr. 23. gr. laga um almannatryggingar skal ellilífeyrir lækka um 45% af tekjum lífeyrisþegans, sbr. 16. gr., uns lífeyririnn fellur niður. Þá segir að ellilífeyrisþegi skuli hafa 300.000 kr. almennt frítekjumark við útreikning ellilífeyris og 2.400.000 kr. sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna, en fyrir gildistöku breytingalaga nr. 131/2021 þann 1. janúar 2022 var upphæð síðarnefnda frítekjumarksins 1.200.000 kr. Lífeyrissjóðstekjur og fjármagnstekjur eru tekjustofnar sem hafa áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A- og C-liða 7. gr. laga um tekjuskatt.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt gögnum málsins gerði Tryggingastofnun ráð fyrir að kærandi fengi 4.364.105 kr. í lífeyrissjóðstekjur á árinu 2021 og 150.983 kr. í fjármagnstekjur, sameiginlegar með maka. Kærandi gerði ekki athugasemdir við þá áætlun og voru bótaréttindi því reiknuð og bætur greiddar út miðað við þær forsendur allt árið 2021. Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2021 reyndust lífeyrissjóðstekjur kæranda á árinu vera 4.798.101 kr. og 321.830 kr. í fjármagnstekjur. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins leiddi í ljós ofgreiðslu að fjárhæð 197.478 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kærandi hefur verið krafinn um endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar.

Ástæða þess að endurkrafa myndaðist á hendur kæranda er sú að lífeyrissjóðstekjur og fjármagnstekjur hans voru hærri á árinu 2021 en gert var ráð fyrir í tekjuáætlun. Um er að ræða tekjustofna sem hafa áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð eins og áður hefur komið fram, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A- og C-liða 7. gr. laga um tekjuskatt. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Kærandi byggir á því að Tryggingastofnun hafi við endurreikning og uppgjör ársins 2021 hvorki notast við 2.400.000 kr. frítekjumark á tekjur kæranda né hafi stofnunin tekið tillit til þess að hann hafi greitt skatt af tekjunum. Eins og áður hefur verið greint frá þá kemur fram í 23. gr. laga um almannatryggingar, eins og ákvæðið hljóðaði fyrir 1. janúar 2022, að ellilífeyrisþegi skuli hafa 300.000 kr. almennt frítekjumark við útreikning ellilífeyris og 1.200.000 kr. sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna. Engin lagaheimild er til staðar sem heimilar að nota 1.200.000 kr. sérstakt frítekjumark vegna greiðslna frá lífeyrissjóði eða fjármagnstekna. Þá er ekki til staðar heimild í lögum til að taka tillit til þess við útreikning tekjutengdra bóta almannatrygginga að greiddur hafi verið skattur af þeim tekjum sem einstaklingar afli sér sem hafi áhrif á bætur.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2021.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta A, vegna ársins 2021, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum