Hoppa yfir valmynd
21. apríl 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 48/2021 Úrskurður 21. apríl 2021

Mál nr. 48/2021                     Eiginnafn:      Ísóbel (kvk.)

 

 

Hinn 21. apríl 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 48/2021, en erindið barst nefndinni 20. apríl.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Ísóbel (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ísóbelar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ísóbel (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum