Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 278/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 278/2023

Fimmtudaginn 24. ágúst 2023

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, dags. 5. júní 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 15. maí 2023 um að samþykkja umsókn barnsmóður hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur frá 15. maí 2022. 

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með rafrænni umsókn, móttekinni 15. maí 2023, sótti barnsmóðir kæranda um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur með börnum þeirra frá 13. maí 2022. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 15. maí 2023, var kæranda tilkynnt um milligöngu stofnunarinnar á meðlagsgreiðslum til barnsmóður hans frá 15. maí 2022. Með tölvupósti 25. maí 2023 andmælti kærandi framangreindri ákvörðun sem Tryggingastofnun ríkisins svaraði með bréfi, dags. 2. júní 2023.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 5. júní 2023. Með bréfi, dags. 7. júní 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins barst 19. júlí 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagssettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru er greint frá því að barnsmóðir kæranda hafi lagt fram kröfu um meðlagsgreiðslur eitt ár aftur í tímann þrátt fyrir að við skilnað að borði og sæng í mars 2022 hafi þau samið um að innheimta ekki meðlag heldur skipta sameiginlegum kostnaði barnanna jafnt á milli þeirra.

Í 2. mgr. í samningi þeirra komi skýrt fram að „[þ]ar sem lög gera ráð fyrir því að kveðið sé á um meðlag í skilnaðarleyfi lýsir móðir því yfir að hún muni ekki innheimta meðlagið, svo lengi sem faðir standi við ákvæði 2. mgr. um að leggja inn á bankareikning til framfærslu barnanna“.

Þau hafi reyndar ekki notað bankareikning en kærandi hafi greitt allan kostnað vegna skólagöngu barnanna, kostnað við tannviðgerðir, læknis- og lyfjakostnað ásamt því að kaupa á þau fatnað eins og hafi þurft. Til að byrja með hafi móðir greitt helming á móti leikskólagjöldum og skólakostnaði en eftir að kærandi hafi flutt aftur til B í desember 2022, hafi hann einn staðið að þessum kostnaði þar sem móðir hafi verið með börnin lengur. Þó ekki nema örlítið lengur því að börnin hafi alla jafna verið hjá kæranda allar helgar frá lok skóla á föstudegi til byrjun skóla á mánudegi.

Nýlega hafi þau breytt þessu á þá leið að börnin séu fjórðu hverju helgi hjá móður. Þar sem kærandi standi enn við sinn hluta samkomulagsins og gott það, sem hafi verið að greiða helming af kostnaði framfærslu barnanna, hafi móðir ekki rétt á að innheimta meðlag.

Farið sé fram á að þessi krafa um meðlagsgreiðslur á hendur kæranda verði felld niður.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kærð sé ákvörðun stofnunarinnar um að verða við beiðni barnsmóður kæranda um að hafa milligöngu um meðlag til hennar með börnum þeirra frá 15. maí 2022.

Í 42. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar komi fram að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.

Kveðið sé á um það í 4. mgr. sömu greinar að Tryggingastofnun sé heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berist stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 40. gr. ekki við.

Samkvæmt 67. gr. barnalaga nr. 76/2003 sé Tryggingastofnun skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns um meðlag eða samningi foreldra um meðlag staðfestum af sýslumanni, þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemi einföldu meðlagi.

Málavextir séu þeir að Tryggingastofnun hafi tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 15. maí 2023, að stofnunin hefði samþykkt að hafa milligöngu um greiðslu meðlags til barnsmóður kæranda frá 15. maí 2022 með tveimur börnum þeirra. Þann 15. maí 2023 hafi Tryggingastofnun borist umsókn barnsmóður kæranda um meðlagsgreiðslur frá 13. maí 2022 ásamt leyfisbréfi til lögskilnaðar, dags. 8. maí 2023, þar sem komi fram að kærandi skuli greiða meðlag með tveimur börnum sínum frá 18. mars 2022 til 18 ára aldurs. Kærandi hafi andmælt þessari ákvörðun með tölvupósti 25. maí 2023 sem hafi verið svarað með bréfi, dags. 2. júní 2023.

Hlutverk Tryggingastofnunar sé að hafa milligöngu um greiðslu meðlags þegar ákvörðun hafi verið tekin með lögmætum hætti. Ef foreldri leggi fram löggilda meðlagsákvörðun beri Tryggingastofnun samkvæmt 42. gr. laga um almannatrygginga og 67. gr. barnalaga að hafa milligöngu um greiðslu meðlags, allt að 12 mánuði aftur í tímann. Lög veiti Tryggingastofnun ekki heimild til að taka önnur gögn en talin séu upp í framangreindum ákvæðum til greina við milligöngu um greiðslu meðlags.

Hjá Tryggingastofnun liggi fyrir löggild meðlagsákvörðun, þ.e. leyfisbréf til lögskilnaðar, dags. 8. maí 2023, sem kveði á um meðlagsgreiðslur frá kæranda til barnsmóður hans. Þá liggi fyrir umsókn barnsmóður kæranda um meðlag.

Með vísan til framangreinds beri Tryggingastofnun skylda til að hafa milligöngu um meðlag samkvæmt lögformlegri meðlagsákvörðun sé þess farið á leit við stofnunina allt að 12 mánuði aftur í tímann. Tryggingastofnun hafi engar heimildir til að virða að vettugi lögbundna skyldu sína til að greiða meðlag samkvæmt hinni lögformlegu meðlagsákvörðun. Tryggingastofnun hafi því borið að hafa milligöngu á meðlagi til barnsmóður kæranda frá 15. maí 2022 eins og óskað hafi verið eftir og hafi ekki heimild til að taka til greina það sem kærandi hafi tekið fram í kæru.

Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi margsinnis í úrskurðum sínum staðfest þetta hlutverk Tryggingastofnunar og að ekki sé heimilt að horfa til annarra atriða við ákvörðun um milligöngu meðlagsgreiðslna. Í því samhengi skipti ekki máli hvort að barn hafi jafna búsetu hjá báðum foreldrum sínum eða hvort að greiðsla meðlags hafi farið fram fyrir það tímabil sem Tryggingastofnun hafi samþykkt milligöngu meðlags. Þá hafi nefndin sagt að ekki sé heimilt að setja viðbótarskilyrði í reglugerð sem takmarki lögbundinn rétt meðlagsmóttakanda til milligöngu meðlagsgreiðslna frá stofnuninni, eins og til dæmis að gefa greiðanda kost á að sýna fram á að meðlag hafi verið greitt fyrir sama tímabil. Meðal úrskurða nefndarinnar varðandi þessi atriði megi nefna úrskurði í málum nr. 312/2017, 333/2018, 17/2019, 215/2019, 407/2019, 408/2019, 59/2020 og 76/2021.

Að gefnu tilefni skuli það tekið fram að 1. janúar 2022 hafi tekið í gildi breyting á barnalögum á þá leið að nú geti foreldrar samið um skipta búsetu barna sinna hjá sýslumanni. Við staðfestingu sýslumanns á samningi um skipta búsetu falli niður samningur, úrskurður, dómsátt eða dómur sem kunni að liggja fyrir um umgengni og meðlag.

Stofnunin telji ljóst, miðað við fyrirliggjandi gögn, að afgreiðsla málsins hafi að fullu og öllu verið í samræmi við lög, reglur og úrskurði úrskurðarnefndar.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 15. maí 2023 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá 15. maí 2022.

Kveðið er á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar ríkisins í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þar segir að Tryggingastofnun ríkisins sé skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla laganna, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni, sem hann hefur á framfæri sínu, snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags og annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildir þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga. Samkvæmt 4. mgr. 42. gr. laga um almannatryggingar er stofnuninni heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 40. gr. laganna ekki við.

Í 44. gr. laga um almannatryggingar er að finna heimild til að setja reglugerð um framkvæmd ákvæðisins. Fjallað er um heimild til að greiða meðlag aftur í tímann í 7. gr. reglugerðar nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga. Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. er heimilt að greiða meðlag í allt að 12 mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem gögn samkvæmt 5. gr. berast Tryggingastofnun. Þá segir í 2. og 3. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar:

„Þegar meðlagsákvörðun, þar með talin ákvörðun um meðlag til bráðabirgða skv. 9. gr., og ákvörðun um framlag til menntunar eða starfsþjálfunar skv. 10. gr. er eldri en tveggja mánaða skal einungis greiða frá byrjun þess mánaðar sem umsókn og fylgigögn skv. 5. gr. berast, nema sérstakar ástæður séu fyrir hendi sem geta réttlætt greiðslur lengra aftur í tímann, allt að 12 mánuði. Með sérstökum ástæðum er m.a. átt við ef meðlagsmóttakanda hefur af einhverjum ástæðum verið ómögulegt að setja fram kröfu um milligöngu meðlagsgreiðslna án tafar.

Þegar sótt er um greiðslu aftur í tímann á grundvelli meðlagsákvörðunar sem er eldri en tveggja mánaða skal ennfremur gefa meðlagsskyldum aðila kost á að sýna fram á að meðlag hafi þegar verið greitt fyrir sama tímabil og sótt er um.“

Samkvæmt framangreindu ber Tryggingastofnun ríkisins að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur, berist beiðni þar um frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Fyrir liggur að barnsmóðir kæranda, sem er meðlagsmóttakandi, sótti um milligöngu Tryggingastofnunar um meðlagsgreiðslur með börnum þeirra frá 13. maí 2023 með rafrænni umsókn þann 15. maí 2023. Stofnunin samþykkti umsóknina frá 15. maí 2022 á grundvelli leyfis Sýslumanninum á Suðurnesjum til lögskilnaðar, dags. 8. maí 2023. Samkvæmt því ber kæranda að greiða barnsmóður sinni einfalt meðlag með hvoru barni frá 18. mars 2022 til 18 ára aldurs barnanna. Í kæru greinir kærandi frá því að hann telji þessi ákvörðun ekki rétta þar sem að foreldrarnir hafi samþykkt að barnsmóðir hans myndi ekki innheimta meðlag þar sem að þau hafi ákveðið að skipta sameiginlegum kostnaði jafnt á milli þeirra. Fyrir liggi skriflegt samkomulag þess efnis. Barnsmóðir kæranda hafi til að byrja með greitt helming leikskólagjalda og skólakostnaðar en það hafi svo breyst, hann standi nú einn undir þessum kostnaði þar sem að börnin séu aðeins meira hjá móður en kæranda.

Hlutverk Tryggingastofnunar í tengslum við meðlagsgreiðslur markast af ákvæðum viðeigandi laga. Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um almannatryggingar er stofnuninni falið að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur, sé þess farið á leit við stofnunina, í þeim tilvikum þar sem lögformleg meðlagsákvörðun liggur fyrir. Í ákvæðinu, sem er grundvöllur ákvörðunar stofnunarinnar, segir nánar tiltekið að hver sá sem fær lögformlega ákvörðun um meðlag með barni geti snúið sér til stofnunarinnar og fengið fyrirframgreiðslu meðlags samkvæmt ákvörðuninni.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráðið verði af 42. gr. laga um almannatryggingar að meginreglan sé sú að Tryggingastofnun beri að greiða meðlag í samræmi við meðlagsákvörðun. Þá telur úrskurðarnefndin að ákvæði 4. mgr. 42. gr. laganna feli í sér takmörkun á greiðslu meðlags aftur í tímann, þ.e. að ekki sé heimilt að greiða meðlag lengra en tólf mánuði aftur í tímann, talið frá byrjun þess mánaðar sem viðeigandi gögn bárust Tryggingastofnun. Í ljósi þess og með hliðsjón af þróun lagaákvæðisins og lögskýringargögnum telur úrskurðarnefnd velferðarmála að túlka verði heimild Tryggingastofnunar til greiðslu aftur í tímann samkvæmt 4. mgr. 42. gr. laga um almannatryggingar á þá leið að stofnuninni beri almennt að greiða aftur í tímann í samræmi við lagaákvæðið ef meðlagsákvörðun kveður á um það, sbr. úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 312/2017. Að mati nefndarinnar hafa lög ekki að geyma heimild til að setja frekari skilyrði fyrir greiðslu aftur í tímann. Þá telur úrskurðarnefndin að reglugerðarheimildin í 44. gr. laga um almannatryggingar feli ekki í sér heimild til að setja viðbótarskilyrði í reglugerð sem takmarkar lögbundinn rétt meðlagsmóttakanda til milligöngu meðlagsgreiðslna frá Tryggingastofnun.

Eins og áður hefur komið fram liggur fyrir í máli þessu leyfi Sýslumannsins á Suðurnesjum til lögskilnaðar, dags. 8. maí 2023, sem kveður á um meðlagsskyldu kæranda með börnum þeirra tveimur frá 18. mars 2022 til 18 ára aldurs. Í ljósi þess bar Tryggingastofnun að fallast á umsókn barnsmóður kæranda um milligöngu um meðlagsgreiðslur. Það er því mat úrskurðarnefndar að ekki sé heimilt að synja meðlagsmóttakanda um milligöngu meðlagsgreiðslna aftur í tímann með vísan til greiðslna til útgjalda vegna barna þeirra.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 15. maí 2023 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá 15. maí 2022. 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður A, frá 15. maí 2022, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum