Hoppa yfir valmynd
16. janúar 2018 Forsætisráðuneytið

Óskað eftir umsögnum vegna heildarendurskoðunar jafnréttislaga nr. 10/2008

Velferðarráðuneytið í Skógarhlíð - myndVelferðarráðuneytið

Vegna heildarendurskoðunar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er óskað eftir umsögnum og tillögum að breytingum á gildandi löggjöf frá þeim sem láta sig efni laganna varða og telja þörf fyrir breytingar.

Skipaður hefur verið starfshópur sem samanstendur af fulltrúum frá velferðarráðuneytinu, dómsmálaráðuneytinu og Jafnréttisstofu til að hefja undirbúning að heildarendurskoðun laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Jafnframt kemur starfshópurinn til með að funda með öðrum sérfræðingum eftir þörfum, þar með talið frá aðilum á vinnumarkaði, frjálsum félagasamtökum o.fl.

Félags- og jafnréttismálaráðherra kemur auk þess til með að skipa þverpólitíska nefnd sem mun hafa það hlutverk að skila til ráðherra drögum að lagafrumvarpi sem ætlað er að stuðla frekar að jafnrétti kynjanna með aukinni skilvirkni og eflingu úrræða auk tillögu að framtíðarskipan stjórnsýslu jafnréttismála. Gert er ráð fyrir að félags- og jafnréttismálaráðherra leggi frumvarp um breytingu á lögum fyrir 148. löggjafarþing, haustið 2018.

Starfshópurinn hefur ákveðið að undirbúa störf sín með því að óska eftir umsögnum við gildandi löggjöf og tillögum að breytingum með umfjöllun um mikilvægi þeirra. Allir sem láta sig málið varða eru hvattir til að senda inn ábendingar og athugasemdir.

Umsagnir óskast sendar ráðuneytinu á póstfangið [email protected] og merktar: Umsögn um lög nr. 10/2008 fyrir 28. febrúar nk.*

 

*(Tilkynningin var uppfærð 7. febrúar þegar ákveðið var að framlengja umsagnarfrestinn frá 14. feb. til 28. feb.)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum