Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2022 Dómsmálaráðuneytið

Sjö sóttu um tvær stöður aðstoðarlögreglustjóra

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu auglýsti nýverið laus til umsóknar tvö embætti aðstoðarlögreglustjóra.

Annars vegar var auglýst eftir aðstoðarlögreglustjóra á ákærusviði. Það svið annast ákærumeðferð mála og eru starfsmenn sviðsins jafnframt lögreglumönnum innan handar við rannsóknir mála. Undir sviðið heyra þrjú ákæruteymi, eitt sem sinnir miðlægum málum embættisins, annað sem sinnir umferðarmálum og öðrum verkefnum og það þriðja sem sinnir verkefnum lögreglustöðva embættisins.

Tvær umsóknir bárust um þá stöðu:

  • Hulda Elsa Björgvinsdóttir, staðgengill lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og sviðsstjóri ákærusviðs
  • Karl Ingi Vilbergsson, lögreglustjórinn á Vestfjörðum

Hins vegar var auglýst eftir aðstoðarlögreglustjóra löggæslusviðs. Það svið sinnir almennri löggæslu og heyra fjórar lögreglustöðvar embættisins undir sviðið auk aðgerðardeildar og umferðardeildar.

Fimm umsóknir bárust um þá stöðu:

  • Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn
  • Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn
  • Jón Sigurður Ólason, yfirlögregluþjónn
  • Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn
  • Snorri Magnússon, fyrrverandi formaður Landssambands lögreglumanna

Umsóknarfrestur rann út 16. febrúar og verður skipuð ráðgefandi hæfisnefnd sem fara mun yfir umsóknirnar.

Uppfærð frétt 21. febrúar:
Í ljós hefur komið að einn umsækjandi til viðbótar, Snorri Magnússon, sótti um stöðu aðstoðarlögreglustjóra á löggæslusviði.
Póstkerfið sem tekur á móti umsóknum gerði að líkindum athugasemd við stærð fylgiskjala og umsóknin virðist af þeim sökum ekki hafa komist til skila. Umsækjandi gat sýnt fram á tímasetningu innsendingar af sinni hálfu og var umsóknin því tekin gild.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum