Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 519/2019 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 519/2019

Þriðjudaginn 28. janúar 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 5. desember 2019, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. júní 2019, um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. júní 2019, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði frá og með þeim degi á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 5. desember 2019. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 10. desember 2019, var kæranda tilkynnt að kæra hefði borist að liðnum kærufresti og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hann að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gætu átt við í málinu. Skýringar bárust frá kæranda 19. desember 2019.

Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. desember 2019, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Umbeðin gögn bárust 7. janúar 2020.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi óskar eftir endurskoðun á ákvörðun Vinnumálastofnunar vegna tveggja mánaða refsingar fyrir að hafa ekki mætt á hópfundi í mars og apríl 2019. Kærandi greinir frá nýsköpunarverkefni sem hann hafi verið að vinna að frá september 2018. Þegar kærandi hafi fengið hina kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi hann hætt að vinna í verkefninu og snúið sér til fyrri starfa, enda þriggja barna faðir með stórt heimili. Síðar hafi kærandi frétt af verkefninu B, sótt um það haustið 2019 og fengið samþykki fyrir því. Hins vegar væri kærandi enn að taka út refsingu fyrir að hafa ekki mætt á þessa tvo hópfundi sem honum finnist ekki sanngjarnt. Hann sé búinn að stofna fyrirtæki í kringum verkefnið og miklar líkur séu á að það nái miklu flugi á árinu 2020. Þau hjónin séu búin að leggja allan þeirra tíma og fjármuni í verkefnið.

Í skýringum kæranda vegna kærufrestsins kemur fram að hann hafi talið að refsingin myndi fyrnast með því að fara af atvinnuleysisbótum þessa tvo mánuði þar sem hann hafi fengið tímabundna vinnu. Þá vísar kærandi til vinnu sinnar við nýsköpunarverkefnið en það svar hafi ekki verið tekið gilt hjá Vinnumálastofnun. 

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 4. júní 2019 um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Hin kærða ákvörðun var tilkynnt kæranda með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 4. júní 2019, en ákvörðunin var kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála með kæru, móttekinni 5. desember 2019. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort fyrir hendi séu atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.

Kærandi hefur vísað til þess að hann hafi talið að refsingin myndi fyrnast með því að fara af atvinnuleysisbótum þessa tvo mánuði. Þá hefur kærandi vísað til vinnu sinnar við tiltekið nýsköpunarverkefni. 

Fyrir liggur að kæranda var í hinni kærðu ákvörðun leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála eru þær ástæður sem kærandi hefur lagt fram vegna kærufrestsins ekki þess eðlis að afsakanlegt verði talið að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Þá verður heldur ekki séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Með hliðsjón af framangreindu er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum