Hoppa yfir valmynd
6. apríl 2006 Heilbrigðisráðuneytið

Ráðherra heimsækir deildir og svið Landspítala

Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur undanfarnar tvær vikur heimsótt svið og deildir Landspítalans. Hefur ráðherra heimsótt hverja deildina á fætur annarri til að kynna sér milliliðalaust þjónustuna sem þar er veitt, til að kynna sér aðstæður á spítalanum og til að ræða við starfsmenn, ekki hvað síst um þá ákvörðun að byggja nýjan spítala. Hefur ráðherra lýst mikilli ánægju með heimsóknirnar.

Sjá nánar á vef LSH: http://www4.landspitali.is/lsh_ytri.nsf/htmlpages/index.html

IMG_8516

IMG_8528

Svipmyndir frá heimsóknum ráðherra á LSH



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum