Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 57/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 18. febrúar 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 57/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU20120020

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 8. desember 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. nóvember 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Þess er krafist að hina kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi, annars vegar með vísan til 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna, og hins vegar með vísan til 2. mgr. 36. gr. sömu laga. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.            Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 13. september 2020. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 21. september 2020, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Slóvakíu, Svíþjóð, Finnlandi og Þýskalandi. Þann 8. október 2020 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá sænskum yfirvöldum, dags. 16. október 2020, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 18. nóvember 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 24. nóvember 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 8. desember 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 14. janúar 2021 ásamt fylgigögnum.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að sænsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Svíþjóðar ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Svíþjóðar.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Kærandi vísar í greinargerð sinni til umfjöllunar um málavexti úr greinargerð hans til Útlendingastofnunar. Þar komi m.a. að kærandi hafi í viðtölum hjá Útlendingastofnun greint frá því að hann væri berklaveikur og ef hann fengi ekki viðeigandi lyf myndi hann hósta þar til hann hóstaði upp blóði. Andleg heilsa hans væri sæmileg en hann glímdi við vægt þunglyndi. Kærandi vakni um miðjar nætur vegna endurupplifana af atburðum í heimaríki, m.a. þegar hann hafi orðið vitni að því að foreldrar hans hafi verið drepnir. Í Svíþjóð hafi kærandi verið heimilislaus og verði honum gert að snúa aftur þangað bíði hans þar ekkert nema flutningur til heimaríkis. Hann hafi aðeins fengið neyðarheilbrigðisþjónustu í Svíþjóð og ekki notið aðstoðar lögfræðings vegna umsóknar sinnar um alþjóðlega vernd þar í landi.

Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Í fyrsta lagi gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar um að honum muni standa til boða húsnæði og fjárhagsaðstoð verði honum gert að snúa aftur til Svíþjóðar auk þess sem talið hafi verið að honum hafi ekki tekist að sýna fram á að hans bíði varðhald þar í landi við endursendingu. Samkvæmt yfirlýsingu sænskra yfirvalda og laga þar í landi eigi hann ekki rétt á frekari aðstoð þar sem hann hafi fengið lokasynjun í máli sínu auk þess sem hann hafi yfirgefið landið. Þá verði ráðið af nýjustu skýrslu European Council on Refugees and Exiles að verulegar líkur séu á því að kærandi verði settur í varðhald við endursendingu til Svíþjóðar. Í öðru lagi gerir kærandi athugasemd við að honum muni standa viðhlítandi heilbrigðisþjónusta til boða í Svíþjóð. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi aðeins fengið neyðarþjónustu þar í landi þegar hann hafi orðið mjög veikur. Þar sem hann muni ekki eiga rétt á fjárhagsaðstoð í Svíþjóð þá muni hann ekki geta greitt fyrir heilbrigðisþjónustu þar. Bendir kærandi á að vegna þess álags sem sé á sænska heilbrigðiskerfinu vegna Covid-19 faraldursins muni það síður en svo hafa jákvæð áhrif á þá þjónustu sem standi umsækjendum um alþjóðlega vernd til boða. Þá gagnrýnir kærandi að Útlendingastofnun hafi gert kröfu um framlagningu gagna um að hann hafi ekki fengið viðhlítandi meðferð vegna veikinda sinna í Svíþjóð en það hafi ekki verið á hans færi. Í þriðja lagi gerir kærandi athugasemd við að hann hafi ekki verið metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tl. 3. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi hafi Útlendingastofnun borið að afla frekari gagna um heilsufar kæranda. Telji kærandi því fullt tilefni fyrir kærunefnd útlendingamála til að endurskoða umrætt mat Útlendingastofnunar á því hvort hann teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Í fjórða lagi gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar um að sérstakar ástæður hafi ekki verið fyrir hendi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, auk þess sem hann geri fyrirvara við lagastoð reglugerðar nr. 276/2018 og þau þröngu skilyrði sem komi fram í henni við mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Að mati kæranda séu sérstakar ástæður fyrir hendi í máli hans með vísan til veikinda hans og aðstæðna í Svíþjóð. Í fimmta lagi gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð. Að mati kæranda hafi stofnunin ekki kynnt sér ástandið í Svíþjóð í dag og óskar kærandi eftir því að kærunefnd endurskoði umrætt mat.

Hvað varðar aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð vísar kærandi til umfjöllunar í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar. Þar komi m.a. fram að mikið álag hafi verið á hæliskerfinu undanfarin ár, aðgengi umsækjenda, sem hafi upplifað erfið áföll, að sálfræðiþjónustu ekki verið fullnægjandi, sumir umsækjendur eigi ekki lengur rétt á fjárhagsaðstoð og húsnæði og að umsækjendur sem hafi fengið lokasynjun í máli sínu eigi von á því að vera hnepptir í varðhald við endurkomu þeirra til landsins.

Kærandi byggir á því að íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka umsókn hans til efnislegrar meðferðar með vísan til 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. laganna, og 2. mgr. 36. gr. sömu laga. Vísar kærandi til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar þar sem ítarlega hafi verið farið í inntak umræddra lagaákvæða og þau heimfærð við aðstæður hans. Þar komi m.a. fram að kærandi hafi fengið lokasynjun í Svíþjóð og líkur séu á því að hann verði fluttur þaðan til heimaríkis með ófyrirsjáanlegum afleiðingum en samkvæmt opinberum heimildum séu almennir borgarar ekki öruggir þar í landi.

Þá ítrekar kærandi athugasemdir sínar sem áður hefur verið greint frá í tengslum við mat Útlendingastofnunar á því hvort kærandi teljist vera einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tl. 3. gr. laga um útlendinga og aðstæðum í Svíþjóð m.t.t. Covid-19 faraldursins. Telji kærandi að rannsókn stofnunarinnar hafi verið áfátt og gerir hann því þá kröfu til vara að ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans verði ógild og að stofnuninni verði gert að taka málið til meðferðar að nýju, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til úrskurða kærunefndar útlendingamála í málum KNU17040035 frá 2. júní 2017 og KNU17040017 frá 27. júní 2017 máli sínu til stuðnings.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Svíþjóðar á umsókn kæranda er byggð á b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi sé með umsókn um alþjóðlega vernd til meðferðar þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja sænsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Svíþjóð

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Amnesty International Report 2017/18 – Sweden (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

  • Annual Report on the situation of Asylum in the European Union 2018 (European Asylum Support Office, 24. júní 2019);
  •  

  • Asylum Information Database. National Country Report – Sweden (European Council on Refugees and Exiles, 11. maí 2020);
  • EASO Asylum Report 2020. Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union (European Asylum Support Office, 25. júní 2020);
  • Freedom in the World 2019 – Sweden (Freedom House, 2019);
  • Good Advice for Asylum seekers in Sweden (The Swedish Network of Refugee Support Group, ágúst 2019);
  • Observations by the United Nations High Commissioner for Refugees Regional Representation for Northern Europe on the draft law proposal on restrictions of the possibility to obtain a residence permit in Sweden (The UN High Commissioner for Refugees, 10. mars 2016);
  • Sweden 2019 Human Rights Report (United States Department of State, 11. mars 2020);
  • Upplýsingar af vefsíðu sænsku útlendingastofnunarinnar (www.migrationsverket.se);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (http://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 18. febrúar 2021) og
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 18. febrúar 2021).

Samkvæmt framangreindri skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) tekur sænska útlendingastofnunin (s. Migrationsverket) ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd. Umsækjandi um alþjóðlega vernd á þess kost að bera synjun útlendingastofnunarinnar á umsókn sinni undir stjórnsýsludómstól (s. Migrationsdomstolen) og þeim dómi er unnt að áfrýja til áfrýjunardómstóls (s. Migrationsöverdomstolen). Umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni hjá sænsku útlendingastofnuninni og framangreindum dómstólum, eiga þess kost að leggja fram viðbótarumsókn hjá sænsku útlendingastofnuninni, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef nýjar upplýsingar eða ný gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst verulega eða verulegir annmarkar hafa verið á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði fyrir viðbótarumsókn verið uppfyllt. Samkvæmt sænskum lögum þurfa að vera gildar ástæður fyrir því að upplýsingar eða gögn hafi ekki verið fyrr lögð fram í málsmeðferðinni. Ef réttmæt ástæða er til að telja að útlendingur sé í hættu, þ. á m. á dauða, líkamsrefsingu, pyndingum eða annarri vanvirðandi meðferð við endurkomu sína til viðtökuríkis, þurfi þó ekki að sýna fram á að gildar ástæður séu fyrir því eða ný gögn eða nýjar upplýsingar komi svo seint fram. Synji sænska útlendingastofnunin að taka viðbótarumsókn til skoðunar má kæra þá ákvörðun og engin takmörk eru á því hversu oft umsækjandi getur lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Svíþjóð er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Samkvæmt framangreindum skýrslum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Svíþjóð eiga þeir rétt á húsnæði, mataraðstoð og vasapeningum, geti þeir ekki framfleytt sér sjálfir. Þá kemur fram á áðurnefndri heimasíðu sænsku útlendingastofnunarinnar og í skýrslu ECRE að umsækjendum um alþjóðlega vernd í Svíþjóð sé tryggður aðgangur að grunnheilbrigðisþjónustu. Sveitarfélagið sem umsækjandi um alþjóðlega vernd dvelst í hefur milligöngu um að útvega umsækjanda lækni og aðra heilbrigðisþjónustu við hæfi. Eigi umsækjandi við andlega vanlíðan að stríða á hann rétt á því að óska eftir viðeigandi þjónustu frá heilsugæslunni sem staðsett er í sveitarfélaginu sem hann dvelst í. Þá er tekið tillit til þarfa einstaklinga sem teljast vera í viðkvæmri stöðu, þ. á m. að því er varðar sérfræðiaðstoð. Greiða þarf vægt komugjald vegna heimsóknar á heilsugæslu en innlögn á spítala er umsækjanda að kostnaðarlausu. Fari kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu fram úr ákveðinni upphæð er hægt að óska eftir fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Þá eiga umsækjendur rétt á takmarkaðri félagslegri aðstoð á meðan viðbótarumsókn er til meðferðar. Umsækjandi um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, sem fengið hefur neikvæða niðurstöðu í máli sínu, hefur aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. brýnni geðheilbrigðisþjónustu, fram að brottför en nýtur hins vegar ekki fjárhagsstuðnings til að greiða fyrir slíka þjónustu eða lyf. Þá missir hann rétt sinn til húsnæðis og framfærslu en mörg sveitarfélög halda þó áfram að styðja við umsækjendur sem hafa fengið neikvæða niðurstöðu auk þess sem að sænska útlendingastofnunin heldur úti viðkomumiðstöðvum (e. transit centres) fyrir þá sem hafa samþykkt sjálfviljuga heimför (e. voluntary departure).

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er ljóst að sænsk stjórnvöld uppfylla skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd leggja fram umsókn um vernd í Svíþjóð í fyrsta skipti eiga þeir rétt á lögfræði- og túlkaþjónustu án endurgjalds þegar umsókn er til meðferðar hjá sænsku útlendingastofnuninni og á kærustigum málsins. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga hins vegar ekki rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds við að leggja fram viðbótarumsókn en þeir geta átt rétt á að fá tilnefndan lögmann ef sænska útlendingastofnunin samþykkir að taka viðbótarumsóknina til skoðunar. Endurgjaldslaus túlkaþjónusta er ekki í boði við málsmeðferð viðbótarumsókna. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geta einnig leitað til frjálsra félagasamtaka, t.d. ráðgjafarmiðstöðvar (s. Rådgivningsbyrån) sem veitir lögfræðiaðstoð og ráðgjöf .

Samkvæmt framangreindri skýrslu ECRE eru ákvarðanir um varðhald umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð almennt teknar af sænsku útlendingastofnuninni, stjórnsýsludómstólunum eða af lögreglunni. Í 10. kafla sænsku útlendingalaganna (s. Utlänningslagen 2005:716) eru talin upp skilyrði þess að setja megi einstaklinga í varðhald, þ.m.t. þá sem hafa verið umsækjendur um alþjóðlega vernd. Meðal annars má setja umsækjendur í varðhald ef þeim hefur verið vísað brott frá landinu á tilteknum grundvelli eða að líklegt sé að þeim verði synjað um inngöngu í landið. Slíkt er þó ekki gert nema á grundvelli almannaöryggis eða að hætta sé talin á að umsækjandi muni reyna að koma sér undan brottvísun. Ákvarðanir um varðhald eru almennt endurskoðaðar af dómstólum og við meðferð slíka mála hjá dómstólnum eiga einstaklingar rétt á lögfræðiaðstoð.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] einstæður karlmaður. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann sé eða hafi verið með berkla í lungum sem hann taki lyf við. Andleg líðan hans sé með ágætum en að hann telji sig vera þunglyndan. Í framlögðum samskiptaseðlum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 16. október 2020 til 13. janúar 2021, kemur fram að kærandi sé almennt hraustur. Kærandi hafi farið í lungnamyndatöku og niðurstöður hennar gætu bent til lítillar kölkunar í hægra lunga. Hafi það verið metið sem berklar og hafi kærandi í kjölfarið byrjað á sex mánaða lyfjameðferð. Samkvæmt samskiptaseðli hafi umrædd lyfjameðferð hafist þann 19. október sl. Kærandi hafi leitað á Göngudeild sóttvarna og kvartað undan kviðverkjum, ógleði og uppköstum en greint frá því í seinni heimsóknum að umræddir kvillar hafi horfið. Kærandi hafi einnig leitað sér aðstoðar á deildinni vegna útbrota og hafi hann fengið viðeigandi aðstoð vegna þess. Samkvæmt samskiptaseðli frá heilsugæslu Keflavíkur, dags. 23. október 2020, hafi kærandi einnig leitað til læknis þar vegna kviðverkja og uppkasta við að taka lyfin sín. Þá liggur fyrir skimunarlisti sem lagður var fyrir kæranda um andlega líðan hans.

Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, þann 20. október 2020, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns á vegum Rauða kross Íslands, jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 11. janúar 2021, um framlagningu frekari gagna í málinu. Bárust frekari gögn um heilsufar þann 14. janúar 2021. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beita] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni. Ákvæðinu verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra, trúverðugra, nægilega nákvæmra og uppfærðra upplýsinga, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Þar kemur fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja á til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður eru ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð. 

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Þá skuli líta til þess, í tilviki þungunar, hvort umsækjanda standi til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til gagna frá heilbrigðisstarfsfólki sem sýna fram á slíkt og, telji kærunefnd að umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, hlutlægra og trúverðugra gagna sem sýna fram á að sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandi þarfnast sé ekki í boði í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun að neðan. 

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst en meðal annars liggur fyrir að kærandi sé með berkla og að hann hafi hafið lyfjameðferð hér á landi vegna þess. Þá kemur jafnframt fram að þeirri meðferð ljúki þann 19. apríl nk. Í gögnum málsins kemur fram að kærandi hafi haft aðgang að heilbrigðisþjónustu í Svíþjóð. Þá liggur ekki fyrir að kærandi hafi fengið lokasynjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, líkt og haldið er fram í greinargerð kæranda, en sænsk yfirvöld samþykktu viðtöku á kæranda með vísan til b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Umrætt ákvæði leggur skyldu á aðildarríki að taka aftur við umsækjanda sem hefur lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd sem er til meðferðar í því ríki. Af gögnum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð verður ráðið að umsækjendur sem eru enn í umsóknarferli eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu, en gætu þurft að greiða fyrir slíka þjónustu. Fari umræddur kostnaður fram úr ákveðinni upphæð geti umsækjendur óskað eftir fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Þá verður einnig ráðið af framangreindum gögnum að umsækjendur sem hafa fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. brýnni geðheilbrigðisþjónustu, en fá þó ekki fjárhagsstuðning ríkisins til þess að greiða fyrir slíka þjónustu. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að kærandi komi því til með að standa til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta þar í landi, en hann muni e.t.v. þurfa að greiða fyrir slíka þjónustu sjálfur. Kærunefnd áréttar það sem kemur fram í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, þ.e. að meðferð við veikindum teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda eða aðstæður hans að öðru leyti ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Með vísan til framangreinds telur kærunefnd að heilsufar kæranda sé ekki þess eðlis að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er til hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærunefnd beinir þeim tilmælum til Útlendingastofnunar og lögreglu að flutningur kæranda fari fram með þeim hætti að heilsufari hans verði ekki stefnt í hættu og að ekki muni verða rof á lyfjameðferð hans, m.a. með því að miðla upplýsingum um heilsufar kæranda og þörf fyrir lyfjameðferð til sænskra yfirvalda, sbr. 31. og 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, að uppfylltum skilyrðum ákvæðanna.

Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda einnig til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum.

Hvað varðar sjónarmið kæranda um að varðhald í Svíþjóð kunni að bíða hans við komuna þangað til lands áréttar kærunefnd það sem þegar hefur komið fram um varðhald þar í landi. Umsækjendum um alþjóðlega vernd sem hlotið hafa endanlega neikvæða niðurstöðu í Svíþjóð getur, eftir atvikum, verið gert að sæta varðhaldi í samræmi við skilyrði sænskra laga þar um og getur það t.d. átt við þegar einstaklingur á yfir höfði sér brottvísun og tilefni er til að ætla að hann muni láta sig hverfa. Sé ákvörðun um varðhald tekin á lægra stjórnsýslustigi er unnt að bera lögmæti þess undir dómstóla. Í áðurgreindri skýrslu ECRE kemur fram að sænskir dómstólar hafi komist að þeirri niðurstöðu að hámarks lengd varðhalds vegna framkvæmdar brottvísunar séu tólf mánuðir. Í 11. kafla sænsku útlendingalaganna er mælt fyrir um rekstur varðhaldsmiðstöðva þar í landi. Þar er mælt fyrir um að koma eigi fram við þá útlendinga sem þar sé haldið af mannúð og virðingu. Þá eigi aðbúnaður að vera með eins líkum hætti og í hefðbundnum móttökumiðstöðvum sem rekin séu af sænsku Útlendingastofnuninni, að því undanskildu að um lokað úrræði er að ræða og ákveðnar takmarkanir eru á ferðafrelsi þeirra sem þar dveljast. Af öryggisástæðum er heimilt að gera útlendingi að dvelja í herbergi sínu en slík ákvörðun lýtur reglulegri endurskoðun, í það minnsta þriðja hvern dag. Þá njóti þeir sem dvelja í varðhaldsmiðstöðvum aðgangs að heilbrigðisþjónustu að sama marki og aðrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Með hliðsjón af framangreindu telur nefndin því ljóst að sá möguleiki að kærandi kunni að vera færður í varðhald leiði ekki til þess að hann teljist eiga erfitt uppdráttar í Svíþjóð eða að öðru leyti séu fyrir hendi sérstakar ástæður í máli hans af þeim sökum. Þá er áréttað að framangreindar landaupplýsingar um aðstæður í Svíþjóð beri með sér að einstaklingur sem hafi fengið lokasynjun á máli sínu í Svíþjóð geti lagt fram viðbótarumsókn, svo sem ef um nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans eða ef aðstæður hafa breyst í máli hans. Þá séu engin takmörk á því hversu oft umsækjandi geti lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Ítrekar kærunefnd hér að auki það sem áður hefur komið fram að ekki liggur fyrir í máli kæranda að hann hafi fengið lokasynjun í máli sínu en samkvæmt gögnum málsins er umsókn hans enn til meðferðar þar í landi.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem nú eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Hafi aðgerðirnar m.a. falist í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins á einhverjum tímapunkti lokað fyrir endursendingar einstaklinga á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Var það m.a. gert hér á landi yfir ákveðið tímabil en óvissa ríki um það hvenær framkvæmd endursendinga verði komin í sama horf og áður en Covid-19 faraldurinn skall á. Yfirvöld í Svíþjóð hafa jafnframt gripið til aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar, m.a. með takmörkunum á ferðum til landsins og takmörkunum á fjöldasamkomum. Þrátt fyrir að smitum hafi fjölgað á nýjan leik í Svíþjóð hefur kærunefnd ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem við lýði eru vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar. Í því sambandi lítur kærunefnd einnig til þess að Lyfjastofnun Evrópu hefur samþykkt notkun á þremur tegundum bóluefna gegn veirunni sem veldur Covid-19 og að vænta megi að notkun fleiri bóluefna verði samþykkt á næstunni. Þá lítur kærunefnd til þess að bólusetning er hafin í aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. viðtökuríkinu.

Af skýrslum er ljóst að viðtökuríkið býr við stöðuga stjórnarhætti og sterka innviði. Að mati kærunefndar er því ekkert sem bendir til þess að það tímabundna ástand sem nú ríki komi til með að hafa teljandi áhrif á getu eða vilja viðtökuríkisins til að taka á móti kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt og veita honum nauðsynlegan stuðning og viðeigandi aðbúnað.

Í því sambandi er rétt að árétta að Dyflinnarreglugerðin gerir ráð fyrir því að samstarfsríkin hafi almennt sex mánuði frá því að lokaákvörðun er tekin um kæru umsækjanda um alþjóðlega vernd til að flytja umsækjanda til viðtökuríkis, sbr. 1. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að skv. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Svíþjóðar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti ekki, eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi hefur kærunefnd sérstaklega litið til sterkra innviða viðtökuríkis og þess frests sem aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins hafa til að endursenda umsækjendur til viðtökuríkis og fjallað var um hér að framan.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 20. október 2020 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 13. september 2020.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar þeirra hafa ríki rétt til stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða er til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná háu alvarleikastigi til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er af yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort raunverulegu líkamlegum skaða eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstól Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 249. mgr.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Dómstóllinn vísar til þess að lög Evrópusambandsins séu byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki deila með öðrum aðildarríkum þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að því gagnkvæma trausti á að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmálinn mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr. og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli ESB um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 78-80. mgr. Það er hins vegar ekki óhugsandi að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi, verði hann fluttur til þess ríkis, sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmálanum, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Í ljósi þess, ef byggt yrði á því að sú forsenda að reglum sáttmálans sé fylgt af aðildarríkum samstarfsins sé óhrekjanleg yrði það ekki samrýmanlegt þeirri skyldu að túlka og beita Dyflinnarreglugerðinni til samræmis við grundvallarmannréttindi svo sem 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála ESB um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr. Af þeim sökum hefur Evrópudómstóllinn talið að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök sýna fram á að raunveruleg hætta sé á að hann verði fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála ESB um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar opinbert afskiptaleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna þeirrar sérstaklega viðkvæmu aðstöðu sem hann kann að vera í, lendir, án tillits til óska hans eða persónulegra ákvarðana, í slíkri stöðu efnislegrar sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, svo sem fæði, hreinlæti, þaki yfir höfuðið, sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr.

Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema ofangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.

Eins og ráða má af ofangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná mjög háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því. 

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra, trúverðugra, nægilega nákvæmra og uppfærðra gagna, að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. þau viðmið sem rakin voru hér að framan. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. til hliðsjónar Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 11. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr. og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, þ.m.t. möguleika umsækjenda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar af sænskum yfirvöldum. Sænsk yfirvöld eru bundin af sambærilegum reglum og Ísland um vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkis þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra eða frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. IV. kafla sænsku útlendingalaganna (s. Utlänningslagen 2005:716). Að mati kærunefndar veitir málsmeðferð sænskra yfirvalda nægilega tryggingu fyrir því að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í því skyni að tryggja að enginn umsækjandi sé sendur þangað sem líf hans eða frelsi er í hættu. Vegna athugasemdar í greinargerð leggur kærunefnd áherslu á að við túlkun á því hvaða skyldur hvíla á ríkjum sem senda einstaklinga til annarra ríkja þar sem þeir kunna að vera sendir áfram til þriðja ríkis (e. indirect refoulement) hefur nefndin horft á hvort ríkið, sem senda á einstaklinginn til, veiti raunhæfa vernd (e. effective guarentees) til að tryggja að einstaklingar verði ekki sendir áfram í ómannúðlegar og vanvirðandi aðstæður, sbr. til hliðsjónar dóm Mannréttindadómstóls Evrópu frá 21. janúar 2011 í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09). Kærunefnd telur gögn málsins bera með sér að í Svíþjóð sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem líf þess eða frelsi sé ógnað. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem benda til þess að meðferð á umsókn hans í Svíþjóð hafi verið óforsvaranleg. Samkvæmt framsögðu benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Svíþjóð, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð og til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiði því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Athugasemdir við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við mat Útlendingastofnunar á viðkvæmri stöðu hans, við beitingu og lagastoð reglugerðar um útlendinga með áorðnum breytingum og við rannsókn stofnunarinnar á heilsufari hans.

Kærandi telur að tilefni sé til þess að kærunefnd endurskoði mat Útlendingastofnunar er varðar sérstaklega viðkvæma stöðu kæranda, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Af þessu tilefni vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga snýst um það hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu skv. 1. mgr. Skilgreining á stöðu skv. 1. mgr. hafi ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga fari fram hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð.

Líkt og áður hefur komið fram gerir kærandi athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar sem hann telji verulega áfátt og brjóti gegn 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærandi greindi frá líkamlegu og andlegu ástandi sínu í viðtölum hjá Útlendingastofnun, dags. 5. og 20. október 2020. Kærunefnd áréttar það sem áður hefur verið rakið að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, þann 20. október 2020, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá má sjá, líkt og fram hefur komið, að kærandi hafi farið á Göngudeild sóttvarna þar sem hann hafi lýst líkamlegum einkennum sínum og fengið eftirfylgni, ráðleggingar og lyf við þeim kvillum sem hafi hrjáð hann. Í ljósi framangreinds er það mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi ekki verið ábótavant hvað þetta varðar. Breytir tilvísun kæranda til úrskurða kærunefndar í málum KNU17040035 frá 2. júní 2017 og KNU17040017 frá 27. júní 2017 þar engu um en kærunefnd hefur komist að því að mat Útlendingastofnunar hvað þetta atriði varðar hafi ekki verið ábótavant auk þess sem málin séu ekki sambærileg máli kæranda í veigamiklum atriðum. Þá lítur kærunefnd einnig til þess að tilvísaðir úrskurðir voru kveðnir upp áður en reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 tók gildi. Úrskurðirnir hafa því takmarkað fordæmisgildi.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð.

Vegna athugasemda kæranda í greinargerð um beitingu 32. gr. a reglugerðar um útlendinga tekur kærunefnd sérstaklega fram að hún telji ljóst að það leiði bæði af orðalaginu „viðmið“ og tilvísun í reglugerðinni um að þau séu í „dæmaskyni“ að ekki sé um að ræða tæmandi upptalningu á þeim sjónarmiðum sem komið geta til greina við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli. Af því leiðir að aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu eða hærra alvarleikastigi, geta haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður eru ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Kærunefnd áréttar í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.m.t. heilsufars hans og annarra þátta sem benda til viðkvæmrar stöðu einstaklingsins. Kærunefnd leggur því áherslu á að heildarmat sé lagt á atvik í hverju máli fyrir sig á grundvelli einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda að þessu leyti.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kom hingað til lands þann 13. september 2020 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Svíþjóðar innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa sænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Svíþjóðar með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

 

 

 

Þorbjörg I. Jónsdóttir                                                                                    Bjarnveig Eiríksdóttir

                                                                                             

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum