Hoppa yfir valmynd
16. júní 2011 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 16. júní 2011

Mál nr. 47/2011                    Eiginnafn:     Georgía

                                                Millinafn:      Georgía

 

Hinn 16. júní 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 47/2011 en erindið barst nefndinni 7. júní: 

Sótt er um eiginnafnið Georgía (kvk.) annars vegar og millinafnið Georgía hins vegar. Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn, skal millinafn dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu. Nafnið Georgía hefur eignarfallsendingu og er því ekki heimilt að fallast á það sem millinafn.

Eiginnafnið Georgía (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Georgíu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Georgía er hafnað.

Beiðni um eiginnafnið Georgía (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum