Hoppa yfir valmynd
16. janúar 2019 Utanríkisráðuneytið

Afríkubúar vilja helst góða atvinnu og hagvöxt

Ljósmynd frá Úganda: gunnisal - mynd

Áttunda Heimsmarkmiðið, góð atvinna og hagvöxtur, er efst á óskalista Afríkubúa þegar þeir eru spurðir álits á mikilvægustu Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun. Afrobarometer lagði spurninguna fyrir almenning í 34 Afríkuríkjum og langflestir tilgreina markmið átta: Stuðla að viðvarandi sjálfbærum hagvexti og arðbærum mannsæmandi atvinnutækifærum fyrir alla. Rúmlega 45 þúsund manns svöruðu könnuninni.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun eru eins og kunnugt er sautján talsins og þau eiga að nást fyrir árið 2030. Alls nefndu 57% þátttakenda í könnun Afrobarometer áttunda markmiðið um góða atvinnu og hagvöxt sem mikilvægasta markmiðið. Í öðru sæti var annað markmiðið: ekkert hungur með 31% og í þriðja sæti þriðja markmiðið: heilsa og vellíðan.

Markmiðið um jafnrétti kynjanna lenti í neðsta sæti í þessari könnun en aðeins 1% aðspurðra nefndi fimmta markmiðið um að tryggja jafnrétti kynjanna og efla völd kvenna og stúlkna. Fáir nefndu líka tíunda markmiðið um aukinn jöfnuð, eða aðeins 2%. Og 3% þeirra sem svöruðu könnuninni nefndu aðgerðir gegn loftslagsbreytingum, þrettánda markmiðið.

Nánar í umfjöllun Alþjóðabankans

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

8. Góð atvinna og hagvöxtur
2. Ekkert hungur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum