Hoppa yfir valmynd
5. desember 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 573/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 5. desember 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 573/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19090067

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 27. september 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 18. september 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar, í fyrsta lagi á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og í öðru lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi þann 27. mars 2018. Lauk málsmeðferð hans með úrskurði kærunefndar útlendingamála þann 6. nóvember 2018, en með úrskurðinum var umsókn hans um alþjóðlega vernd synjað um efnismeðferð. Var kærandi því fluttur til Grikklands þann 16. janúar 2019. Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi að nýju þann 1. febrúar 2019. Lauk málsmeðferð hans með úrskurði kærunefndar útlendingamála þann 9. maí 2019, en með úrskurðinum var umsókn hans um alþjóðlega vernd synjað um efnismeðferð. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi fluttur til Grikklands þann 28. ágúst 2019.

Kærandi lagði í þriðja sinn fram umsókn um alþjóðlega vernd þann 12. september 2019. Við umsókn framvísaði kærandi flóttamannavegabréfi gefnu út af grískum stjórnvöldum með gildistíma til 29. janúar 2023. Þá hefur kærandi einnig lagt fram grískt dvalarleyfisskírteini með gildistíma til 18. október 2020. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun þann 18. september 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 18. september 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann sama dag og kærði kærandi ákvörðunina þann 27. september 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 8. október 2019 ásamt fylgigagni.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

Var kæranda veittur 7 daga frestur til að yfirgefa landið og athygli hans vakin á því að yfirgæfi hann ekki landið innan frests væri heimilt að brottvísa honum. Í brottvísun fælist bann við komu til landsins síðar og endurkomubann skyldi að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda vísar hann m.a. til viðtala vegna fyrri umsókna hans um vernd hér á landi, fyrst árið 2018 og aftur í byrjun ársins 2019. Þá hafi kærandi í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 18. september 2019 lýst erfiðum aðstæðum í Grikklandi. Telji kærandi að heilsufar sitt hafi breyst frá því að hann var fluttur frá Íslandi síðastliðinn ágúst. Kærandi hafi lýst andlegri heilsu sinni á þann veg að hann […] og að líf á götunni blasi við honum. Jafnframt kveði kærandi að hann hafi glímt við […] á Grikklandi sem hann hafi ekki fengið viðeigandi meðferð við. Þá vísar kærandi til skjals sem hann kveði sig hafa fengið afhent frá grískum yfirvöldum til staðfestingar á því að hann hafi ekki fengið þjónustu og ekki verið boðin búseta í Grikklandi. Þá hafi kærandi lýst eindregnum vilja sínum til að dvelja hér og telji sig hafa sterk tengsl við landið.

Í greinargerð gerir kærandi grein fyrir aðstæðum, aðbúnaði og réttarstöðu þeirra sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi og vísar í því sambandi til fjölda skýrslna alþjóðlegra stofnana og frjálsra félagasamtaka máli sínu til stuðnings. Vísar kærandi m.a. til þess að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi lögum samkvæmt rétt á heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, atvinnu og húsnæði en það skorti á að lögunum sé framfylgt og fólk fái raunverulega ekki notið þeirra réttinda.

Kærandi byggir í fyrsta lagi á því að endursending hans til Grikklands jafngildi broti á grundvallarreglu þjóðarréttar um non-refoulement. Samkvæmt 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skuli taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi þrátt fyrir heimildir í 1. mgr. sama ákvæðis ef beiting heimildanna myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr. laga um útlendinga. Lýsing kæranda á aðstæðum hans í Grikklandi komi heim og saman við heimildir um aðstæður þar í landi varðandi m.a. heilbrigðisþjónustu og upplifun flóttamanna um óöryggi. Vísar kærandi til þess að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Endursending kæranda til Grikklands muni brjóta í bága við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og samsvarandi grundvallarreglu þjóðarréttar um non-refoulement. Því beri að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Krafa kæranda er í öðru lagi byggð á því að ótækt sé að beita heimild a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem íslenskum stjórnvöldum sé skylt að taka mál hans til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna og sérstakra tengsla hans við landið á grundvelli 2. mgr. 36. gr. sömu laga. Kærandi vísar þá til tiltekinna úrskurða kærunefndar útlendingamála sem hann telur að gefi til kynna að viðkvæm staða umsækjenda um alþjóðlega vernd skuli hafa aukið vægi andspænis sjónarmiðum sem tengjast m.a. skilvirkni við meðferð umsókna. Kærandi telur að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga vegna andlegrar vanlíðanar hans. Vísi kærandi til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sem sé áréttuð í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 25. gr. sömu laga, um að fara skuli fram mat, eins fljótt og kostur er, á því hvort einstaklingur sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi fjallar um reglugerð nr. 276/2018 sem breytti reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Í reglugerðarbreytingunni felist skilyrði vegna sérstakra ástæðna sem eigi sér ekki fullnægjandi stoð í settum lögum og gangi gegn ákvæðum laga um útlendinga. Kærandi vísar til 32. gr. a umræddrar reglugerðar, þar sé tekið fram í dæmaskyni að sérstakar ástæður eigi m.a. við ef umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki. Kærandi vísi til þess að hann hafi átt erfitt uppdráttar í Grikklandi m.a. vegna þeirrar kerfislægu og alvarlegu mismununar sem þar þrífst gagnvart flóttafólki. Mismununin birtist m.a. í fordómum grísks samfélags, reglum sem geri flóttafólki erfitt með að nálgast þjónustu í Grikklandi, skorti á aðstoð og fræðslu grískra stjórnvalda, sem og útilokun að aðgengi að menntun og atvinnu. Staða kæranda muni því vera síðri en staða almennings í Grikklandi. Þá vísi kærandi til þess að hann sé hér á landi í þriðja sinn vegna umsóknar sinnar um alþjóðlega vernd og að hann hafi myndað góð tengsl við fólkið í landinu og líki hér vistin vel. Hann hafi dvalið hér á landi í um 10 mánaða skeið vegna fyrstu málsmeðferðar sinnar en dvöl hans í Grikklandi hafi verið í skemmri tíma. Kærandi vísar jafnframt til ummæla í athugasemdum í frumvarpi til laga um útlendinga máli sínu til stuðnings þar sem komi m.a. fram að heimilt sé að líta til fyrri dvalar við mat á sérstökum tengslum við landið, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins er kærandi handhafi alþjóðlegrar verndar í Grikklandi. Samkvæmt framlögðu dvalarleyfisskírteini er hann með réttarstöðu flóttamanns þar í landi og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 18. október 2020. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] ára einstæður karlmaður sem hefur í þrígang komið einn hingað til lands. Kærandi hefur m.a. greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að honum finnist sem […]. Þá hefur hann lýst […] sem hann hafi fundið fyrir í Grikklandi. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 11. apríl til 18. júní 2018, sem kærandi lagði fram vegna fyrstu umsóknar hans kemur m.a. fram að hann sé almennt heilbrigður, en að hann kveði sig þó vera kvíðinn vegna stöðu sinnar. Þá er ekki að sjá að kærandi hafi leitað sér heilbrigðisþjónustu hér á landi við síðari meðferð mála sinna.

Það er mat kærunefndar að gögn málsins, þ. á m. viðtal kæranda hjá Útlendingastofnun og fyrri gögn um heilsufar hans, beri ekki með sér að kærandi hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2019 – Greece (Freedom House, 2019);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta á jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópskt réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tala hvorki né skilja grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilja.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast brot gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu.

Að mati kærunefndar eru einstaklingsbundnar aðstæður kæranda ekki slíkar að endursending hans til Grikklands verði talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu. Í ljósi fyrirliggjandi gagna telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi hafi aðgang að viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna, þ.m.t. geðheilbrigðisþjónustu. Kærunefnd telur gögn málsins ekki benda til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið 32. gr. a. reglugerðar um útlendinga, en í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Þá hefur kærandi greint frá því að aðstæður hans í Grikklandi hafi verið erfiðar, m.a. í ljósi skorts á félagslegri framfærslu, erfiðleikum við að finna atvinnu og fordóma. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar hafi heimild til að stunda atvinnu og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu. Þótt skýrslur um aðstæður í Grikklandi bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrara aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þjónustu og aðstoð í Grikklandi.

Jafnframt getur kærandi leitað til grískra yfirvalda verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Þar að auki getur kærandi leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda óttist hann um öryggi sitt. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi byggir þá á því að taka eigi umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann hafi sérstök tengsl við landið. Kærandi telur að rétt sé að horfa til fyrri dvalar hans, en hann hafi dvalið hér í um 10 mánuði í fyrsta skiptið sem hann hafi verið hér á landi. Hann hafi myndað góð tengsl við fólkið í landinu.

Kærunefnd bendir á að kærandi hefur eingöngu dvalið hér á landi í tengslum við umsóknir sínar um alþjóðlega vernd sem hefur verið synjað um efnismeðferð og hefur því aldrei verið með dvalarleyfi hér á landi. Kærandi kvaðst þá í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 18. september 2019 ekki eiga vini eða fjölskyldu hér á landi. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 12. september 2019.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni nokkrar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, m.a. við mat stofnunarinnar á viðkvæmri stöðu hans, auk þess sem kærandi telur að reglugerð nr. 276/2018 eigi sér ekki lagastoð. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda að þessu leyti.

Í 2. málslið 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skal Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda byggði stofnunin mat sitt á einstaklingsbundnum aðstæðum hans á viðtali hans hjá stofnuninni. Það er mat kærunefndar að slík framkvæmd geti í einhverjum tilvikum verið forsvaranleg en að taka verði mið af atvikum hverju sinni, t.d. hvort nýjar upplýsingar í málinu gefi tilefni til að ætla að hagir umsækjanda hafi breyst að einhverju leyti. Í þessu máli liggur fyrir að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi í þriðja skiptið, þann 12. september 2019, rúmum tveimur vikum eftir að hafa verið fluttur frá landinu. Í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun, þann 18. september 2019, var kærandi spurður út í heilsufar sitt og hvort einhverjar breytingar hefðu orðið á því frá því að hann hafi verið fluttur frá Íslandi. Svaraði kærandi þeirri spurningu játandi og kvaðst […]. Kvaðst hann hafa verið […] í Grikklandi og að hann hafi ekki fengið viðeigandi meðferð. Ljóst er þá af gögnum máls að kærandi hefur ekki sótt sér frekari heilbrigðisþjónustu hér á landi við meðferð máls síns. Það er mat kærunefndar að í ljósi fyrrgreindrar frásagnar kæranda og fyrirliggjandi gagna að ekki hafi verið tilefni til þess að rannsaka málið frekar.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Samkvæmt gögnum málsins virðist kærandi hafa komið hingað til lands þann 12. september 2019. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 12. september 2019. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 7 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Athygli kæranda er vakin á því að ef hann yfirgefur ekki landið innan frests kann að vera heimilt að brottvísa honum. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kæranda er leiðbeint um að með úrskurði kærunefndar nr. 350/2019, dags. 28. ágúst 2019, ákvað nefndin að breyta framkvæmd varðandi afmörkun 12 mánaða tímabilsins sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Eins og fram kemur í úrskurðinum eru lok tímabilsins þegar fyrir liggur endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi vegna þess stjórnsýslumáls sem hófst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd. Þessi breytta stjórnsýsluframkvæmd leiðir til þess að þótt ekki komi til flutnings kæranda úr landi innan 12 mánaða frá upphafi málsins hefur það ekki þýðingu fyrir þann frest sem 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekur til.  

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 7 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 7 days to leave the country voluntarily.

 

Áslaug Magnúsdóttir

 

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                                       Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum