Hoppa yfir valmynd
15. mars 2016 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 97/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 15. mars 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 97/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16010007

Kæra […], […]og […]

á ákvörðunum Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 12. janúar 2016, kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefnd kærandi) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 9. desember 2015, um að synja henni og börnum hennar, […], […], og […], fd. […] um hæli á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og breytt á þann hátt að kæranda og börnum hennar verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga nr. 96/2002. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann hátt að kæranda og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um hæli fyrir sig og börn sín tvö hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þann 11. október 2015. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 26. nóvember 2015 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 9. desember 2015, synjaði Útlendingastofnun kæranda og börnum hennar um hæli jafnframt því sem þeim var synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi kærði þær ákvarðanir til kærunefndar útlendingamála við birtingu þann 12. janúar 2016 og óskaði jafnframt eftir frestun réttaráhrifa þeirra. Fallist var á beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa með bréfi dags. 15. janúar 2016. Þann sama dag var óskað eftir greinargerð frá talsmanni kæranda sem barst þann 29. janúar s.á. Kærendur komu þann 1. mars 2016 fyrir kærunefnd útlendingamála og gerðu grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b laga um útlendinga. Viðstaddir voru talsmaður kærenda og túlkur.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Kærandi byggði umsókn sína um hæli á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna deilna við nágrannafjölskyldu vegna húsnæðis fjölskyldunnar sem nágrannar þeirra telji sig eiga tilkall til. Kærandi kvað aðila tengda fjölskyldunni hafa ráðist á hana og lamið. Hún kvað þessa aðila hafa ráðist á eiginmann hennar árið 2008 með þeim afleiðingum að hann hafi þurft að leggjast inn á spítala í viku. Árið 2014 hafi þessir aðilar ráðist á son þeirra sem hafi skaðast á auga. Kærandi kvaðst hafa leitað til lögreglunnar en enga aðstoð fengið og það væri vegna tengsla umræddra aðila við […].

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að […]. Í ákvörðuninni kemur fram að sjálfstæði dómstóla sé almennt virt í […] og að þeir gættu réttinda […] borgara með ágætum. Yrði því ekki byggt á því að mál kæranda muni ekki hljóta sanngjarna málsmeðferð í heimalandi hennar.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að eftirfylgni við hverslags brot gegn refsilöggjöf sé góð og íbúar landsins njóti allra helstu mannréttinda. Í landinu sé til staðar kerfi sem þeir geti leitað til telji þeir á sér brotið. Þá sé […] aðili að mannréttindasáttmála Evrópu og fleiri alþjóðlegum mannréttindasamningum. Hótanir og líkamsárásir séu refsiverðar í […] og kveðið sé á um refsinæmi hótana um líflát vegna líkamsárása og alvarlegra líkamsárása í 84., 88., og 89. gr. almennra hegningarlaga í […]. Yrði því að hafna fullyrðingu kæranda um að lögregla og yfirvöld í […] geti ekki veitt henni og fjölskyldu hennar viðeigandi aðstoð.

Við rannsókn Útlendingastofnunar á aðilum sem kærandi kvað hafa ráðist á og hótað henni og fjölskyldu hennar hafi nafn eins þeirra komið upp í tengslum við glæpaklíku að nafni […]. Hún hefði ráðið ríkjum í […] frá árunum 1997-1999. Heimildir bendi þó til þess að aðili þessi sé látinn. Engar upplýsingar hafi fundist um hina aðilana sem kærandi hafi nafngreint en vafi sé að þessu leyti metinn kæranda í hag og byggt á því að hún sæti hótunum frá aðilum þessum.

Að mati stofnunarinnar hafi atvik sem kærandi lýsti hvergi verið svo alvarleg að jafna mætti þeim til ofsókna í skilningi 1. mgr. 44. gr., sbr. 44. gr. a útlendingalaga og ekki væri unnt að rekja aðstæður kæranda til kynþáttar, trúarbragða, aðildar að sérstökum þjóðfélagshópi eða stjórnmálaskoðunar, sbr. 1. mgr. 44. gr. laganna. Þá var ekki talið að kærandi ætti á hættu illa meðferð skv. 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga.

Útlendingastofnun skoðaði í samræmi við 8. mgr. 46. gr. útlendingalaga hvort aðstæður kæranda féllu undir ákvæði 12. gr. f. Það var mat stofnunarinnar að kærandi ætti ekki rétt á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi hafði ekki borið fyrir sig að hún hefði sérstök tengsl við Ísland og ekkert í málinu benti til þess og var henni því synjað um dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við Ísland, skv. 12. gr. f útlendingalaga.

Ekki var talið að endursending kæranda til […] bryti gegn 45. gr. útlendingalaga. Með tilliti til atvika málsins var það niðurstaða Útlendingastofnunar að kæranda skyldi vísað frá landi í samræmi við 3. mgr. 90. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga. Þá var niðurstaða stofnunarinnar að kæra skyldi ekki fresta réttaráhrifum með vísan til c-liðs 1. mgr. 32. gr. útlendingalaga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi sótt um hæli ásamt eiginmanni og tveimur sonum þeirra þann 11. október 2015. Í hælisviðtali hafi komið fram að eiginmaður kæranda hafi átt í deilum við nágrannafjölskyldu þeirra að nafni […] um árabil vegna tiltekinnar fasteignar. Hafi deilan farið fyrir dómstóla en fjölskyldan fengið stöðugar hótanir frá nágrannafjölskyldunni í kjölfarið. Hafi kærandi orðið fyrir líkamsárás í tengslum við deiluna og þá hafi eiginmaður hennar og sonur sömuleiðis verið beittir líkamlegu ofbeldi. Kærandi og eiginmaður hennar hafi margoft leitað til lögreglu en hún hafi ekkert aðhafst, m.a. sökum tengsla nágrannafjölskyldunnar við stjórnvöld.

Í greinargerð kæranda kemur fram að þrátt fyrir viðleitni til framfara á síðustu árum þá sé […] fátækt land þar sem mikil spilling ríki, m.a. í réttarkerfinu sem sé veikburða. Í skýrslu mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins komi fram að spillingin í dómskerfinu sé mikli og hamli alvarlega starfsemi dómstólanna og grafi undan tiltrú almennings á réttlæti og lögum. Þrátt fyrir viðleitni stjórnvalda til að draga úr spillingu þá telji mannréttindafulltrúi Evrópuráðsins að hún dugi skammt og að þörf sé á að grípa til mun ákveðnari aðgerða. Spilling innan lögreglunnar sé þar fyrir utan viðvarandi vandamál og séu mörg dæmi þess að réttindi […] borgara séu brotin í samskiptum þeirra við starfsmenn lögreglunnar.

Talsmaður kæranda bendir á að þegar ákvæði 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga sé skoðað og lögskýringargögn sem að baki henni standi, sé ljóst að kærandi uppfylli skilyrði þess að hljóta viðbótarvernd þar sem hún sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð af hálfu nágrannafjölskyldu sinnar, sem að hennar sögn hafi bæði hótað henni og fjölskyldu hennar lífláti og beitt þau líkamsmeiðingum.

Að mati talsmanns kæranda sé ekki raunhæft að kærandi geti leitað ásjár […] yfirvalda eða dómstóla þegar heimildir bendi til þess að spilling og mútuþægni séu landlægt vandamál sem veikt réttar- og löggæslukerfi sé á engan hátt í stakk búið til að takast á við eða að veita þegnum sínum vernd gegn. Talsmaður kæranda bendir auk þess á 1. mgr. 45. gr. útlendingalaga, svokallaða non- refoulement reglu og bendir á að samsvarandi verndar og kveðið sé á um í umræddri reglu, skuli útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greini í flóttamannahugtakinu sé í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð verði hann sendur aftur til heimaríkis. Talsmaður bendir á að slík ákvörðun myndi að auki brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárninnar, 2. og 3. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Í greinargerð kæranda kemur fram að meginástæða flótta kæranda frá heimaríkinu sé vantraust á vilja og getu stjórnvalda til að veita henni og fjölskyldu hennar vernd gagnvart nágrannafjölskyldunni. Í gögnum málsins kemur fram að kærandi og eiginmaður hennar hafi margsinnis leitað til lögreglunnar í […] en hún hafi ekkert viljað fyrir þau gera. Þau hafi átt í málaferlum við nágrannafjölskylduna um árabil án þess að niðurstaða hafi fengist í málið. Telji þau meginástæðu þess vera þá að málinu hafi alltaf verið frestað vegna þrýstings og tengsla fjölskyldunnar við valdamikla menn. Af ótta um líf sitt hafi kærandi og fjölskylda hennar séð þann kost vænstan að flýja […]. Telji talsmaður kæranda með hliðsjón af þessu að skilyrði 12. gr. f útlendingalaga uppfyllt þar sem stjórnvöld í […] annaðhvort vilji ekki eða geti ekki veitt þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum af því tagi sem um ræðir. Þá vekur talsmaður kæranda athygli á ákvæði 2. mgr. 12. gr. útlendingalaga en þar komi fram að sérstaklega skuli taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er því fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun, en eins og fram hafi komið séu með kæranda í för tveir synir hennar undir 18 ára aldri, annar […] ára og hinn […] ára. Í þessu sambandi bendir talsmaður á athugasemdir með frumvarpi til laga nr. 115/2010, en þar komi fram að til greina komi að gera minni kröfur til að börn njóti verndar og fái dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f, ef þau fá ekki hæli samkvæmt umsókn, eða eiga ekki rétt á dvalarleyfi á öðrum grundvelli.v V

Við töku ákvörðunar í málinu sé mikilvægt að kærunefnd útlendingamála hafi í huga ákvæði 2. mgr. 23. gr. útlendingalaga, en þar komi m.a. fram að ákvarðanir sem varði barn skulu teknar með það sem því er fyrir bestu að leiðarljósi. Þá komi þessi regla einnig fram í 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003, en þar segi að það sem sé barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess. Loks vitnar talsmaður í 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013 þar sem samskonar regla komi fram. Með hliðsjón af framangreindu telji talsmaður engan vafa á því að sonum kæranda sé ekki fyrir bestu að verða sendir ásamt foreldrum sínum til […]þar sem líf foreldra þeirra sé í hættu.

Að lokum kvaðst kærandi ekki geta flutt sig um set innan […]. Væri í því sambandi mikilvægt að hafa […] í huga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað […] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé […] ríkisborgari.

Landaupplýsingar

[…]

Kærunefnd útlendingamála hefur skoðað skýrslur og gögn um […] m.a. eftirfarandi: […].

Í ofangreindum gögnum kemur fram að […] stjórnvöld hafa tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna. Á undanförnum árum hefur talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu í löggæslunni og dómsvaldinu.

Ákvæði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Kærandi sótti um hæli hér á landi þann 11. október 2015 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hennar séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Kærandi byggir kröfu sína á að því að hún og fjölskylda hennar séu í hættu vegna deilu við nágranna vegna húsnæðis fjölskyldunnar.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að einhverjar líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að gildar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna. (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008).

Frásögn kæranda ásamt gögnum um aðstæður í […] sem kærunefnd hefur skoðað styðja ekki þá fullyrðingu kæranda að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 44. gr. útlendingalaga. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu réttarstöðu flóttamanns. Er það mat kærunefndar að þó svo kærandi ætti raunverulega á hættu illa meðferð í heimalandi sínu, af hálfu þeirra aðila sem hún hefur nefnt, þá hafi hún raunhæfan möguleika á að flytja sig um set og leita sér ásjár stjórnvalda þar. Styðja heimildir ekki þá staðhæfingu kæranda að […] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda fullnægjandi vernd óski hún eftir henni við þau.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Kærandi krefst þess til aðallega að hinni kærðu ákvörðun verði breytt á þann veg að kæranda verði veitt viðbótarvernd hér á landi skv. 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga.

Í 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands. Í ljósi þess sem að framan er rakið telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. og 1. mgr. 45 gr. laganna.

Ákvæði 12. gr. f útlendingalaga

Til vara krefst kærandi þess að hinni kærðu ákvörðun verði breytt á þann veg að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f laga nr. 96/2002.

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 segir: „Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.“ Ákvæði 3. mgr. 76. gr. sækir einkum fyrirmynd til inngangsákvæða Barnasáttmálans, einkum 3. gr. Í 1. mgr. 1. gr. barnalaga, nr. 76/2003, segir að barn eigi rétt á að lifa, þroskast og njóta verndar, umönnunar og annarra réttinda í samræmi við aldur sinn og þroska og án mismununar af nokkru tagi. Í 2. mgr. 1. gr. segir að það sem barni er fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess. Barn á rétt á að láta skoðanir sínar í ljós í öllum málum sem það varða og skal taka réttmætt tillit til skoðana þess í samræmi við aldur þess og þroska, skv. 3. mgr. 1. gr. Börn í hælisleit sem koma með foreldrum sínum eða forsjáraðilum njóta að meginefni til sömu verndar og meðferðar og foreldrarnir. Þó eru ákvæði sem kveða á um að sérstaklega skuli tillit tekið til sjónarmiða barnsins í hælisviðtali svo dæmi sé tekið, sbr. 4. mgr. 50. gr. c. laga um útlendinga nr. 96/2002. Í 3. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sbr. lög nr. 19/2013, er kveðið á um að ákvarðanir eða ráðstafanir yfirvalda er varða börn skuli byggðar á því sem börnum er fyrir bestu. Það sem barni er fyrir bestu ætti að hafa forgang hvort sem börn sækja um hæli á eigin vegum eða sem meðlimir fjölskyldu. Virðing fyrir sjónarmiðum barns í 12. gr. sáttmálans kveður á um að börn eigi rétt á að láta í ljósi skoðanir sínar í öllum málum er varða þau og að tekið sé réttmætt tillit til skoðana þeirra í samræmi við aldur þeirra og þroska. Börnum skuli veitt tækifæri til að tjá sig um eigin málefni við málsmeðferð fyrir dómi eða stjórnvaldi. Í viðtölum við foreldra eða forráðamenn barnsins skal ástand barnsins rannsakað og sjálfstæð hælisbeiðni þess. Í 22. gr. Barnasáttmálans er lögð skylda á aðildarríki til þess að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leitar eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið er flóttamaður, fái, hvort sem það er í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eiga. Synir kæranda komu í viðtöl hjá kærunefnd þann 1. mars sl. Í ljósi framburða drengjanna, upplýsinga um […] og gagna í málinu er það mat kærunefndar að það sé í samræmi við bestu hagsmuni þeirra að þeir fylgi foreldrum sínum til […].

Kærandi kveðst hafa leitað til lögreglu en að hún hafi ekki fengið aðstoð vegna tengsla umræddrar nágrannafjölskyldu við […] í […]. Gögn styðja ekki að fólk verði fyrir ofsóknum stjórnvalda í heimalandi kæranda. Auk þess er […].

Kærunefndin telur að kærandi og fjölskylda hennar geti að öllu framangreindu virtu fengið fullnægjandi vernd frá stjórnvöldum í heimalandi sínu. Styðja heimildir ekki þá staðhæfingu kæranda að […]stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita henni og fjölskyldu hennar fullnægjandi vernd óski hún eftir henni við þau.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í […] séu ekki með þeim hætti að rík mannúðarsjónarmið standi til þess að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna skv. 12. gr. f útlendingalaga.

Jafnframt telur kærunefndin kæranda ekki uppfylla skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á Íslandi í tengslum við hælisumsókn sína og aðeins í skamman tíma.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar í máli kæranda og barna hennar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson

Pétur Dam Leifsson Vigdís Þóra Sigfúsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum