Hoppa yfir valmynd
28. júlí 2016 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 271/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 28. júlí 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 271/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16040015

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestur og kæruheimild

Þann 18. apríl 2016 barst kærunefnd útlendingamála tilkynning Útlendingastofnunar um kæru […] (hér eftir nefndur kærandi) á ákvörðun stofnunarinnar, dags. 12. febrúar 2016, um að fella niður rétt hans til dvalar hér á landi.

Kærunefnd telur að í kæru felist krafa um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að kæranda verði heimiluð áframhaldandi dvöl hér á landi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 30. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 2. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins voru atvik þess með þeim hætti að kærandi var fyrst skráður á Íslandi á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þann 30. september 2011 og hefur samkvæmt skráningu í Þjóðskrá verið búsettur hér á landi síðan. Hinn […]. Kærandi fór […].

Hinn 1. október 2013 hafi Útlendingastofnun borist þær upplýsingar að kærandi hafi verið á framfærslu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar síðan í október 2011 og að hann ætti ekki rétt á atvinnuleysisbótum, enda hafi hann aldrei öðlast rétt til slíkra bóta. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. júlí 2014, var réttur hans til dvalar hér á landi felldur niður vegna þess að dvöl hans hafi ekki samræmst tilgangi og skilyrðum laga um útlendinga, né ákvæðum tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/38/EB frá 29. apríl 2004 um rétt borgara Sambandsins og aðstandenda þeirra til frjálsrar farar og dvalar á yfirráðasvæði aðildarríkjanna.

Með beiðni til Útlendingastofnunar, dags. 29. ágúst 2014, óskaði kærandi eftir endurupptöku á máli sínu og hinn 29. september 2014 var fyrrgreind ákvörðun Útlendingastofnunar kærð til innanríkisráðuneytisins. Hinn 17. október 2014 hafi stofnunin fengið þær upplýsingar frá innanríkisráðuneytinu að kæran hefði verið afturkölluð. Í ljósi nýrra upplýsinga um fjölskylduhagi og atvinnu kæranda hafi Útlendingastofnun samþykkt að endurupptaka málið og hafi verið fallið frá niðurfellingu réttar til dvalar hér á landi. Umræddar upplýsingar hafi verið þær að rétthafi hafi átt von á barni með íslenskri konu, væri kominn með atvinnu og hefði snúið lífi sínu til betri vegar.

Hinn 21. janúar 2015 hafi Útlendingastofnun borist þær upplýsingar að kærandi væri aftur kominn á framfærslu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Í ljósi þessa og frekari upplýsinga varðandi fjölskylduhagi rétthafa hafi Útlendingastofnun ákveðið að taka mál rétthafa varðandi niðurfellingu á rétti til dvalar hér á landi upp að nýju. Samkvæmt upplýsingum Útlendingastofnunar hafi rétthafi ekki verið […]. […]. Í ákvörðuninni kemur fram að […].

Samkvæmt upplýsingum úr staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra hafi kærandi þegið greiðslur frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar frá október 2011 þar til nú, utan við í september og október 2014 þegar hann hafi þáð laun og greitt hér skatta.

Útlendingastofnun hafi sent kæranda bréf, dags. 4. ágúst 2015, þar sem honum hafi verið tilkynnt að til skoðunar væri á ný hvort fella ætti niður rétt hans til dvalar á Íslandi af framangreindum ástæðum. Engin frekar gögn bárust frá kæranda. Útlendingastofnun felldi niður rétt kæranda til dvalar hér á landi með ákvörðun sinni, dags. 12. febrúar 2016.

Kærandi kærði ákvörðunin við birtingu þann 20. febrúar 2016 en þann 18. apríl s.á. barst kærunefnd tilkynning um það frá Útlendingastofnun. Kærunefnd bárust gögn málsins frá Útlendingastofnun þann 20. apríl 2016. Þann 25. maí 2016 sendi kærunefnd kæranda bréf þar sem honum var veittur kostur á að leggja fram greinargerð vegna kærumálsins. Frekari gögn eða upplýsingar bárust ekki.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi komið fyrst hingað til lands árið 2007, en staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra hafi sýnt að kærandi hafi þáð laun og greitt skatta hér á landi frá júlí 2007 til júlí 2008. Kærandi hafi hins vegar […] og hafi ekki skráð búsetu sína í Þjóðskrá Íslands fyrr en hann hafi […]. Lögmæt dvöl rétthafa miðist við það tímamark þegar hann skrái búsetu sína í Þjóðskrá Íslands, enda beri honum að skrá búsetu sína hér á landi innan þriggja mánaða frá komu sinni til landsins, skv. 1. mgr. 39. gr. laga um útlendinga. Dvöl umsækjanda fram að því tímamarki geti því ekki talist lögmæt dvöl hér á landi. [...]

Að mati stofnunarinnar hafi kærandi því verið í löglegri dvöl hér á landi frá 30. september 2011, þ.e. í rúmlega fjögur ár. Allan þann tíma hafi rétthafi einungis þegið greiðslur frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar, að frátöldum tveimur mánuðum árið 2014. Telur stofnunin því ljóst að kærandi sé ekki að vinna á Íslandi, að hann hafi þegið félagslega aðstoð í langan tíma sem sé hans eina framfærsla hérlendis sem skráð sé hjá stjórnvöldum og þar með samræmist tilgangur dvalar hans hér á landi ekki skráningu hans hjá Þjóðskrá á grundvelli 1. mgr. 36. gr. a laga um útlendinga, sbr. 7. gr. tilskipunarinnar um frjálsa för. Að mati stofnunarinnar sé ekki að sjá að rétthafi hafi verið atvinnulaus tímabundið og því falli aðstæður hans ekki undir 3. mgr. 40. gr. útlendingalaga um takmarkanir á heimild stofnunarinnar til niðurfellingar á rétti til dvalar.

Með hliðsjón af framansögðu og á grundvelli þeirra gagna sem Útlendingastofnun hafði undir höndum var það mat stofnunarinnar að dvöl rétthafa samræmdist ekki tilgangi og skilyrðum laga um útlendinga, né ákvæðum tilskipunarinnar um frjálsa för, um dvöl EES ríkisborgara í öðru EES ríki. Ákvarðaði stofnunin því svo að réttur kæranda til dvalar hér á landi væri fallinn niður. Í ákvörðuninni var einnig tiltekið að kærandi skyldi yfirgefa landið innan 30 daga frá móttöku ákvörðunarinnar.

IV. Málsástæður kæranda

Greinargerð barst ekki frá kæranda í máli þessu.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í máli þessu er til úrlausnar hvort Útlendingastofnun hafi verið heimilt að fella niður rétt kæranda til dvalar hér á landi á grundvelli VI. kafla laga um útlendinga.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kærandi fyrst skráður á Íslandi á grundvelli a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þann 30. september 2011. Frá þeim tíma hefur kærandi þegið greiðslur frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar, að frátöldum tveimur mánuðum árið 2014.

Ákvörðun Útlendingastofnunar byggir á 40. gr. laga um útlendinga. Þar er fjallað um brottfall dvalarréttar samkvæmt ákvæðum VI. kafla útlendingalaga en í kaflanum er að finna sérreglur um útlendinga sem falla undir EES- samninginn og stofnsamning EFTA. Í 4. mgr. 40. gr. er kveðið á um að Útlendingastofnun taki ákvörðun um hvort réttur útlendings til dvalar falli niður. Réttur til dvalar getur m.a. fallið niður ef dvöl er í öðrum tilgangi en þeim sem samrýmast ákvæðum 36. gr. a laga um útlendinga. Ákvæði 1. mgr. 36. gr. a eru svohljóðandi:

EES- eða EFTA-borgari á rétt til dvalar hér á landi lengur en þrjá mánuði ef hann fullnægir einhverju af eftirgreindum skilyrðum:

a. er launþegi eða sjálfstætt starfandi einstaklingur hér á landi eða,

b. ætlar að veita eða njóta þjónustu hér á landi og fullnægir jafnframt skilyrðum c-liðar, eftir því sem við á,

c. hefur nægilegt fé sér til handa og aðstandendum sínum til að verða ekki byrði á kerfi félagslegrar aðstoðar á meðan á dvöl stendur og fellur undir sjúkratryggingu sem ábyrgist alla áhættu meðan dvöl hans hér á landi varir,

d. er innritaður hjá viðurkenndri námsstofnun með það að meginmarkmiði að öðlast þar menntun eða starfsþjálfun, fellur undir sjúkratryggingu sem ábyrgist alla áhættu meðan dvöl hans hér á landi varir og getur sýnt fram á trygga framfærslu.

Kærandi hefur dvalið hér á landi án atvinnu frá september 2011 og frá þeim tíma þegið fjárhagslega aðstoð sveitarfélags, að frátöldum tveimur mánuðum árið 2014.

Þá eiga undantekningaákvæði 3. mgr. 40. gr. laga um útlendinga ekki við í máli kæranda.

Samkvæmt því sem að framan greinir er réttur kæranda til dvalar hér á landi á grundvelli 1. mgr. 36. gr. a laga um útlendinga fallin niður og er hin kærða ákvörðun því staðfest.

ÚRSKURÐARORÐ

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson

Pétur Dam Leifsson Vigdís Þóra Sigfúsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum