Hoppa yfir valmynd
13. maí 2003 Innviðaráðuneytið

Landsfundir um öryggismál sjómanna

Málfundir um öryggismál sjómanna eru haldnir víða um land á árinu. Sjómenn, útgerðarmenn og aðrir sem láta sig öryggi sjómanna varða eru hvattir til að mæta og koma sjónarmiðum sínum að.

Haldnir hafa verið fundir í Grindavík, Ólafsvík og Ísafirði en næstu fundir eru áætlaðir á Akureyri, Eskifirði og í Vestmannaeyjum í haust.


Á fundunum hafa verið haldin eftirfarandi erindi:
1. Hvers vegna áætlun um öryggismál sjófarenda? Siglingastofnun Íslands.
Farið verður yfir forsendur og verkefni langtímaáætlunar í öryggismálum sjófarenda árin 2001-2003.

2. Eru sjóslys óumflýjanleg? Slysavarnaskóli sjómanna.
Fjallað verður um slysatíðni til sjós og mögulegar leiðir til að minnka hana.

3. Leitar- og björgunarþjónusta við sjófarendur. Landhelgisgæsla Íslands.
Farið verður yfir framtíðarsýn Landhelgisgæslunnar á fyrirkomulagi leitar- og björgunarþjónustu við sjófarendur.

4. Tilkynningarskylda íslenskra skipa.
Kynning verður á starfsemi STK og frætt verður um notkun STK-tækis um borð í skipum.

5. Jákvætt viðmót til öryggismála. Landssamband smábátaeigenda.
Fjallað verður um öryggi smábátasjómanna.

6. Hver er mín skoðun á öryggismálum sjómanna?
Staðkunnur einstaklingur segir frá skoðunum og áherslum sínum á öryggismálum sjómanna.


Fundirnir eru haldnir í tengslum við langtímaáætlun í öryggismálum sjófarenda og að þeim standa: Samgönguráðuneyti, Siglingastofnun Íslands, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Landhelgisgæsla Íslands, Landssamband smábátaeigenda, Sjómannasamband Íslands, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, Vélstjórafélag Íslands og Landssamband íslenskra útvegsmanna.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum