Hoppa yfir valmynd
4. júlí 2018 Innviðaráðuneytið

Framlög til sveitarfélaga til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að áætluðu uppgjöri framlaga til sveitarfélaga á árinu 2018 til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts á grundvelli reglugerðar, nr. 80/2001 með síðari breytingum.

Ráðstöfunarfjármagn Jöfnunarsjóðs til greiðslu framlaganna á árinu nemur samtals um 4.744,7 m.kr. Um 60% af fyrri áætlun um úthlutun framlaga ársins komu til greiðslu mánuðina febrúar til júní eða samtals um 2.846,8 m.kr. Áætlað uppgjör framlaganna, sem nemur 1.897.9 m.kr., fer fram með þremur jöfnum greiðslum mánuðina júlí, ágúst og september, 632,6 m.kr. í hvert sinn.

Útreikningur framlaganna byggist á upplýsingum frá  Þjóðskrá Íslands um álagningarstofna fasteignaskatts í sveitarfélögum 31. desember 2017, sem gilda fyrir árið 2018. Þar er tekið tillit til aðlögunar að breytingum á fasteignamati vegna atvinnuhúsnæðis, sbr. ákvæði laga nr. 135/2014 um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 með síðari breytingum. Við útreikning framlaganna er jafnframt tekið mið af álagningarprósentum fasteignaskatts í sveitarfélögum á árinu 2018.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum