Hoppa yfir valmynd
20. júní 2014 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 44/2014, úrskurður 20. júní 2014

Mál nr. 44/2014
Aðlögun kenninafns: Arnardóttir

 Hinn 20. júní 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 44/2014 en erindið barst nefndinni 3. júní:

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 23. maí 2014, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni umsækjanda um að taka upp kenningu til föður síns, sem umsækjandi segir að merki örn. Óskar umsækjandi að föðurkenningin verði Arnardóttir.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Arnardóttir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum