Hoppa yfir valmynd
27. mars 2009 Dómsmálaráðuneytið

Frestun á framkvæmd brottvísunar hælisleitenda

Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra óskaði í gærkvöld eftir frestun á framkvæmd brottvísunar fimm hælisleitenda sem flytja átti úr landi í morgun til Grikklands.

Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra óskaði í gærkvöld eftir frestun á framkvæmd brottvísunar fimm hælisleitenda sem flytja átti úr landi í morgun til Grikklands. Ástæða þess er sú að í ráðuneytinu er nú þegar til meðferðar kæra vegna ákvörðunar um brottvísun til Grikklands. Hefur ráðuneytið af því tilefni leitað eftir upplýsingum um aðstæður hælisleitenda í Grikklandi. Þær upplýsingar hafa enn ekki borist og því hefur ekki verið tekin ákvörðun um það hvort hefja eigi brottvísanir hælisleitenda til Grikklands á grundvelli Dyflinnar-reglugerðarinnar.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum