Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Matvælaráðuneytið

Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hafin

Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna stendur nú yfir í Sharm El Sheikh í Egyptalandi. - myndSimon Stiel

Tuttugasti og sjöundi aðildaríkjafundur og ráðstefna Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP27) stendur nú yfir í Sharm El Sheikh í Egyptalandi.

Matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir, tekur þátt í seinni viku  loftslagsráðstefnunnar fyrir hönd íslenskra stjórnvalda, þar sem hún mun flytja ávarp Íslands  og taka þátt í fundum og  hliðarviðburðum. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fékk ekki leyfi læknis til að takast á hendur það ferðalag sem ráðstefnan krefst, en ávarpar í gegnum streymi viðburð á vegum Hringborðs Norðurslóða. Ráðstefnan stendur til 18. nóvember.

Fulltrúar stjórnvalda, félagasamtaka og fyrirtækja skráðir á ráðstefnuna

Formleg sendinefnd Íslands er skipuð 17 fulltrúum frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu, matvælaráðuneytinu, Umhverfisstofnun og Orkustofnun. Þá styrkir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið fulltrúa ungmenna til þátttöku á fundinum og er þetta í annað sinn sem fulltrúi ungmenna er í hinni opinberu sendinefnd.

Auk hinnar formlegu sendinefndar sækja þingmenn og fulltrúar frá félagasamtökum og fyrirtækjum viðburði sem tengjast loftslagsráðstefnunni og eru þetta í allt á fimmta tug þátttakenda frá Íslandi. Áætlað er að rúmlega 20 þúsund manns  taki þátt í loftslagsráðstefnunni og tengdum viðburðum í Sharm El Sheikh.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum