Hoppa yfir valmynd
7. ágúst 2003 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 7. ágúst 2003

Þann 7. ágúst 2003, var fundur haldinn í Mannanafnanefnd. Fundinn sátu Andri Árnason, formaður, Guðrún Kvaran og Margrét Jónsdóttir.

 

Eftirtalin mál voru tekin til afgreiðslu:

 

 

Mál nr. 47/2003

Eiginnafn: Margot (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Margot tekur eignarfallsendingu (Margotar) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð: Beiðni um eiginnafnið Margot er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

 

Mál nr. 48/2003

Eiginnafn: Sanna (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Eiginnafnið Sanna tekur eignarfallsendingu (Sönnu) og telst að öðru leyti fullnægja 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð: Beiðni um eiginnafnið Sanna er tekin til greina og skal það fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

Mál nr. 49/2003

Eiginnafn: Malin (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Malin telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.  Beiðni um eiginnafnið Malin er því hafnað. 

Úrskurðarorð: Beiðni um eiginnafnið Malin er hafnað.

 

 

Mál nr. 50/2003

Eiginnafn: Christiana (kvk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Nafnið Christiana telst hvorki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur það unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um eiginnafnið Christiana er því hafnað. 

Úrskurðarorð: Beiðni um eiginnafnið Christiana er hafnað.

 

 

 

Mál nr. 51/2003

Breyting á rithætti: Alexandros-Ionas verði Alexander Jónas

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

Sonur úrskurðarbeiðanda, ber nú eiginnafnið Alexandros-Ionas. Úrskurðarbeiðandi hefur óskað þess að eiginnafn hans verði aðlagað íslensku máli með hliðsjón af 4. mgr. 8. gr. laga nr. 45/1996. Eiginnafn sonar úrskurðarbeiðanda er hér með aðlagað íslensku máli og má vera Alexander Jónas.   

Úrskurðarorð: Beiðni um breytingu á rithætti úr Alexandros-Ionas í Alexander Jónas er tekin til greina.

 

Fleira ekki gert.

Fundi slitið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum