Hoppa yfir valmynd
23. júlí 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Hvatt til skráningar í bakvarðasveit

Félagsmálaráðuneytið hvetur fólk til að skrá sig á lista bakvarðasveitar velferðarþjónustunnar. Velferðarþjónustan sinnir þjónustu við viðkvæma hópa og mikilvægt að hún falli ekki niður þrátt fyrir það ástand sem nú ríkir. Óskað er eftir fólki sem getur starfað í þjónustu við fatlað fólk, aldraða, heimilislausa og börn með sértækar stuðningsþarfir. Óskað er sérstaklega eftir fólki með reynslu og menntun í heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Félagsmálaráðuneytið hefur útbúið rafrænt skráningarform fyrir þá sem eru reiðubúnir að skrá sig í bakvarðasveitina. Fólki gefst kostur á að skrá sig í tímavinnu, hlutastarf eða fullt starf allt eftir því hvað hentar viðkomandi. Laun taka mið af kjarasamningi/stofnanasamningi viðkomandi stéttarfélags á þeirri starfstöð sem um ræðir hverju sinni. 

Athugið að einnig er starfandi sérstök bakvarðasveit fyrir heilbrigðisþjónustu, sjá hér.

Nánari upplýsingar um fyrirkomulag ráðninga

  • Tímabil: Leitað er að fólki sem getur skuldbundið sig í allt að tvo mánuði.
  • Laun: Laun taka mið af kjarasamningum viðeigandi stéttarfélags og þess sveitarfélags eða stofnunar sem um ræðir hverju sinni. 
  • Hver eru réttindi þeirra sem ráða sig til starfa: Orlofsréttindi verða greidd jafnóðum.Veikindaréttur starfsfólks sem ráðið er í tímavinnu eða skemur en tvo mánuði er í samræmi við ákvæði viðeigandi kjarasamninga.
  • Hvar skráir fólk sig í bakvarðasveitina: Skráning í bakvarðasveit.  
  • Hvernig verður staðið að ráðningum: Þau sveitarfélög og stofnanir sem óska eftir að ráða starfsfólk úr bakvarðasveit velferðarþjónustunnar nálgast upplýsingar um liðsauka hjá félagsmálaráðuneytinu. Stofnanir munu sjálfar hafa samband við bakverði og ráðningarsambandið verður á milli einstaklingsins og viðkomandi stofnunar eða sveitarfélags eftir því sem við á hverju sinni.
  • Ef sveitarfélög þarfnast liðsinnis bakvarðasveitar vegna Covid-19 er þeim bent á að hafa samband við félagsmálaráðuneytið í síma 545-8100 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
  • Ef fyrirtæki eða aðrir aðilar, sem sinna velferðarþjónustu við viðkvæma hópa, þarfnast liðsauka vegna Covid-19 er þeim bent á að hafa samband við sitt sveitarfélag sem hefur milligöngu um aðkomu bakvarðasveitar ef þörf krefur.

Hægt er að senda tölvupóst á [email protected] ef þú þarfnast aðstoðar vegna Covid-19.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum