Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2010 Heilbrigðisráðuneytið

Sérnámsstöður í heimilislækningum lausar til umsóknar

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir fimm námsstöður til sérnáms í heimilislækningum lausar til umsóknar. Stöðurnar eru lausar frá 1. júní 2010 og eru að hámarki til þriggja ára.

Gert er ráð fyrir að sérnámslæknir starfi á heilsugæslustöðvum bæði í þéttbýli og dreifbýli og á sjúkrahúsum og taki einnig þátt í fræðilegu námi. Námið byggir á marklýsingu fyrir sérnám í heimilislækningum (FÍH 2008) og er skipulagt nánar í samráði við kennslustjóra sérnáms.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Íslands og fjármálaráðherra.

Umsóknareyðublöð má finna á vef Landlæknisembættisins.

Umsóknarfrestur er til 1. apríl nk.

Umsóknir með upplýsingum um fyrra nám og störf sendist Sveini Magnússyni, yfirlækni í heilbrigðisráðuneytinu, Vegmúla 3, 150 Reykjavík.

Nánari upplýsingar um stöðurnar veitir Alma Eir Svavarsdóttir, aðjúnkt, í síma 585-1800.

Heilbrigðisráðuneytið

Reykjavík, 26. febrúar 2010


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum