Hoppa yfir valmynd
25. mars 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 590/2020-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 590/2020

Fimmtudaginn 25. mars 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 13. nóvember 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. nóvember 2020, um að synja beiðni hennar um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 6. október 2020.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 15. október 2020 og óskaði samhliða eftir greiðslu atvinnuleysisbóta frá 6. október 2020 í stað umsóknardags með vísan til þess að henni hafi verið gert að loka rekstri sínum vegna opinberra sóttvarnaráðstafana þann dag en ekki vitað að hún hefði þurft að sækja um bætur þann sama dag. Með ákvörðun, dags. 6. nóvember 2020, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og bótaréttur metinn 88%. Beiðni kæranda um að umsókn tæki gildi 6. október 2020 var synjað með vísan til 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 13. nóvember 2020. Með bréfi, dags. 17. nóvember 2020, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 21. desember 2020. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 5. janúar 2021, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

 

 

 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi tekur fram að í ljósi þess að vinnustað hennar hafi verið lokað vegna COVID-19 þann 6. október 2020 sé hún ekki sátt með að fá ekki bætur þá viku vegna þess að hún hafi ekki sótt um bætur fyrr en 15. október 2020. Í einfeldni sinni hafi hún ekki verið að stressa sig yfir því að sækja um atvinnuleysisbætur strax á fyrsta degi lokunar þar sem þetta hafi verið ákvörðun ríkisins í ljósi aðstæðna.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að mál þetta varði þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að hafna beiðni kæranda um að fá greiddar atvinnuleysisbætur aftur fyrir umsóknardag hennar. Í 1. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar komi fram að launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum sé heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verði atvinnulausir. Þá segi í 1. mgr. 29. gr. laganna að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í þrjú ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 komi fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun bendir á að það sé grundvallarskilyrði fyrir því að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga að hinn tryggði sæki um slíkt til stofnunarinnar. Stofnunin telji sér ekki heimilt að greiða atvinnuleysisbætur lengra aftur en frá dagsetningu umsóknar atvinnuleitanda um atvinnuleysisbætur. Þar sem Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn kæranda þann 15. október 2020 telji stofnunin að kærandi eigi ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. fortakslaust skilyrði laga nr. 54/2006, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laganna, sbr. fyrri úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 394/2020.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja beiðni kæranda um greiðslu atvinnuleysisbóta afturvirkt frá 6. október 2020.

Í 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um umsókn um atvinnuleysisbætur og er 1. mgr. lagagreinarinnar svohljóðandi:

Launamönnum og sjálfstætt starfandi einstaklingum er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar þegar þeir verða atvinnulausir. Umsóknin skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum og henni skal meðal annars fylgja vottorð fyrrverandi vinnuveitanda, staðfesting um stöðvun rekstrar og önnur nauðsynleg gögn að mati Vinnumálastofnunar. Í umsókn skulu koma fram allar þær upplýsingar er varða vinnufærni umsækjanda og þær rökstuddar fullnægjandi gögnum.

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. frumvarps þess sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun tók við umsókn kæranda 15. október 2020 og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrir þann tíma, sbr. 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 6. nóvember 2020, um að synja beiðni A, um greiðslu atvinnuleysisbóta frá 6. október 2020, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum