Hoppa yfir valmynd
16. maí 2008 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurður 16. maí 2008

FUNDARGERÐ

Ár 2008, föstudaginn 16. maí, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Neðangreint mál var tekið fyrir:

 

 

1.         Mál nr. 35/2008          Eiginnafn:        Öxar (kk.)

Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:

 Eiginnafnið Öxar (kk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið fallbeygist þannig: Öxar – um Öxar – frá Öxari – til Öxars.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Öxar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

  

 

 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum