Hoppa yfir valmynd
10. maí 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 50/2021 Úrskurður 10. maí 2021

Mál nr. 50/2021                     Millinafn:       Aliverti

 

 

 

Hinn 10. maí 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 50/2021 en erindið barst nefndinni 18. janúar.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Aliverti er hvorki dregið af íslenskum orðstofni né hefur það unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið uppfyllir þannig ekki ákvæði 6. gr. laganna.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Aliverti er hafnað.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum