Hoppa yfir valmynd
10. október 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 475/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 10. október 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 475/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19080016

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 7. ágúst 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. júlí 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á Íslandi með vísan til 2. mgr. 36. gr. og 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Til vara er gerð krafa um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun gert að taka málið til meðferðar að nýju.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 16. maí 2019. Þann 15. júlí 2019 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 24. júlí 2019, kom fram að honum hefði verið veitt réttarstaða flóttamanns þann 14. desember 2017 og að hann væri með gilt dvalarleyfi þar í landi til 22. desember 2020. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 4. júní 2019, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 16. júlí 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 23. júlí 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 7. ágúst 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 19. ágúst 2019 ásamt fylgigögnum. Viðbótargögn bárust þann 4. október 2019.

Kærandi óskaði eftir því í greinargerð að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur m.a. fram að hann hafi búið við erfiðar aðstæður í Grikklandi. Fyrst um sinn hafi hann dvalið í flóttamannabúðunum Moria og síðar flust til Aþenu. Þar hafi hann ýmist dvalið á götunni, gistiheimilum eða í almenningsgörðum. Í almenningsgörðunum í Grikklandi hafi það viðgengist að eldri karlmenn hafi keypt kynlífsþjónustu af yngri mönnum sem dvöldu þar. Kærandi kveður að hann hafi skort stuðning grískra yfirvalda og hvorki haft aðgang að skólakerfinu í Grikklandi né fengið atvinnutækifæri þar sem hann tali ekki grísku. Kærandi hafi leitað til félagsmálayfirvalda í Grikklandi og alþjóðastofnana en ekki fengið félagslega aðstoð. Þá telur kærandi að hann hafi ekki haft aðgang að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi en hann hafi ekki þurft að leita sér læknisaðstoðar þar í landi. Í greinargerð kæranda er vísað til umfjöllunar í greinargerð til Útlendingastofnunar um aðstæður og réttindi flóttamanna í Grikklandi. Þar kemur m.a. fram sú afstaða kæranda að grísk stjórnvöld hafi ekki gripið til aðgerða til að koma til móts við stöðu flóttamanna. Sú staðreynd og áhrif efnahagskreppu þar í landi hafi haft áhrif sem jafna megi til mismununar gagnvart flóttamönnum.

Aðalkrafa kæranda um að taka skuli mál hans til efnismeðferðar er í fyrsta lagi byggð á því að ótækt sé að beita heimildinni í a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem hann njóti verndar 42. gr. laganna. Ákvæðið mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulment, eða banni við endursendingu fólks þangað sem líf þess eða frelsi sé í hættu. Telji kærandi að aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi ákvæðisins og samræmist skilgreiningunni á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins. Því beri að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá byggir kærandi aðalkröfu sína í öðru lagi á því að taka skuli mál hans til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í þeim efnum fjallar kærandi almennt um og gerir grein fyrir inntaki og túlkun á ákvæðinu, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum. Kærandi fjallar auk þess um ákvæði 32. gr. a reglugerðar nr. 276/2018 sem breytti reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Þar sé að finna ákvæði sem gangi lengra en ákvæði laga um útlendinga. Kærandi telji að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki. Hann hafi átt erfiða lífsreynslu og upplifað ofbeldi sem leiði af sér andlega vanlíðan. Þá hafi hann orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu eldri karlmanna í Grikklandi um nokkurra ára skeið, þ. á m. þegar hann hafi verið undir lögaldri, og glími við afleiðingar þess í dag. Þá muni hann verða fyrir alvarlegri mismunun við endursendingu til Grikklands og upplifa fordóma þar í landi.

Varakröfu kæranda um ógildingu á ákvörðun Útlendingastofnunar byggir kærandi á því að stofnunin hafi brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins sem lögfest sé í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og áréttuð í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Mikilvægt sé að stjórnvöld ræki skyldu sína til að tryggja að mál séu nægjanlega upplýst áður en ákvörðun sé tekin, einkum vegna þess að kærandi hafi lýst mikilli andlegri vanlíðan, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Gerir kærandi m.a. athugasemd við að Útlendingastofnun hafi tekið ákvörðun í máli hans án þess að niðurstöður læknisskoðunar hafi legið fyrir. Kærandi geri þá kröfu að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi vegna vanrækslu Útlendingastofnunar á rannsókn á heilsufari kæranda og einstaklingsbundnum aðstæðum hans.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt réttarstaða flóttamanns í Grikklandi þann 14. desember 2017 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 22. desember 2020. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára gamall einstæður karlmaður. Í gögnum um heilsufar kæranda kemur fram að hann sé með [...], finni fyrir brunatilfinningu fyrir brjósti og glími við mikla andlega vanlíðan. Þá eigi hann við svefnvandamál að stríða og fái martraðir. Þá kemur fram að kærandi hafi fengið ávísað lyfjum vegna heilsufarskvilla sinna. Í bréfi ráðgjafa Rauða kross Íslands, dags. 31. júlí 2019, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að hafa orðið fyrir [...] ofbeldi. Samkvæmt gögnum málsins hafi kærandi hafið meðferð hjá sálfræðingi Göngudeildar sóttvarna sem er fyrirhugað að haldi áfram.

Í greinargerð kæranda er byggt á því að við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun hafi skort að heildstætt mat færi fram á heilsufari hans, sbr. 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga þar sem Útlendingastofnun hafi ekki aflað frekari upplýsinga um heilsufar kæranda og tekið ákvörðun án þess að niðurstöður læknisskoðunar hafi legið fyrir. Að mati kærunefndar gefa fyrirliggjandi gögn ekki ástæðu til að ætla að þörf sé á frekari gagnaöflun að því er varðar heilsufar kæranda enda sé mál hans nægilega upplýst að því leyti, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga. Að mati nefndarinnar er ekki tilefni til að aðhafst frekar vegna þessarar athugasemdar kæranda.

Það er mat kærunefndar að framangreind gögn beri ekki með sér að andleg veikindi kæranda séu nægilega alvarleg til að hann teljist hafa sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, 29. mars 2019);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu, og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafa vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Jafnframt veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu. Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd.

Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu kæranda að aðstæður flóttafólks í Grikklandi séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð eða að þær samrýmist skilgreiningu á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi verður ráðið að kærandi eigi rétt á grunnheilbrigðisþjónustu, m.a. nauðsynlega geðheilbrigðisþjónustu. Í ljósi fyrirliggjandi gagna telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna, þ. á m. geðheilbrigðisaðstoð og lyf. Kærunefnd telur gögn málsins ekki benda til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, en í því samband er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Þá hefur kærandi greint frá því að aðstæður hans í Grikklandi hafi verið erfiðar, m.a. í ljósi skorts á félagslegri framfærslu, erfiðleika við að finna húsnæði og atvinnu og fordóma. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Grikklandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar hafi heimild til að stunda atvinnu og eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Jafnframt getur kærandi leitað til grískra yfirvalda verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Þar að auki getur kærandi leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda telji hann öryggi sínu ógnað. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 4. júní 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 16. maí 2019.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 16. maí 2019 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kæranda er leiðbeint um að með úrskurði kærunefndar nr. 350/2019, dags. 28. ágúst 2019, ákvað nefndin að breyta framkvæmd varðandi afmörkun 12 mánaða tímabilsins sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Eins og fram kemur í úrskurðinum eru lok tímabilsins þegar fyrir liggur endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi vegna þess stjórnsýslumáls sem hófst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd. Þessi breytta stjórnsýsluframkvæmd leiðir til þess að þótt ekki komi til flutnings kæranda úr landi innan 12 mánaða frá upphafi málsins hefur það ekki þýðingu fyrir þann frest sem 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekur til.

 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Árni Helgason                                          Bjarnveig Eiríksdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum