Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2004 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 37/2004

Þriðjudaginn, 30. nóvember 2004

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 10. september 2004 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 10. september 2004.

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 8. júní 2004 um að synja kæranda um breytingu á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

 

Í rökstuðningi með kæru segir m.a.:

„Ég A, skýt máli mínu til úrskurðarnefndar Tryggingarstofnunar ríkisins. Þannig er máli með vexti að ég eignaðist barn í desember 2002 og fór þá í fæðingarorlof í 1 ár. Mér voru greidd 40% af þáverandi launum mínum þetta ár. Þáði ég greiðslur frá miðjum desember 2002 til desember 2003. Þann 1. júlí 2004 eignaðist ég annað barn og mun ég að þessu sinni fara í fæðingarorlof í hálft ár. Til grundvallar þeim greiðslum sem ég fæ úthlutað frá TR eru lagðar þær greiðslur sem ég hlaut frá TR í fyrra fæðingarorlofi, þ.e. 40% af þáverandi launum mínum. Þetta er ég ósátt við þar sem ljóst er að greiðslu frá TR sem eru reiknaðar sem 40% af launum jafngilda ekki raunverulegum launum.

Af þeim 12 mánuðum sem lagðir eru til grundavallar útreikningum var ég í fæðingarorlofi í 8 mánuði og er því ljóst að þetta lækkar til muna þær greiðslur sem mér eru nú greiddar og eru þær vart til fallnar að hvetja fólk til að lengja fæðingarorlof sitt eða eiga með börn stuttu millibili.“

 

Með bréfi, dags. 16. september 2004, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.

 

Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dagsett 28. september 2004. Í greinargerðinni segir:

„Kærður er útreikningur á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Með umsókn, dags. 21. apríl 2004, sem móttekin var 23. apríl 2004, sótti kærandi um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í 6 mánuði vegna væntanlegrar barnsfæðingar 17. júní 2004.

Með bréfi til kæranda, dags. 8. júní 2004, var henni af hálfu lífeyristryggingasviðs tilkynnt að umsókn hennar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hefði verið samþykkt frá 17. júní 2004 og að mánaðarleg greiðsla næmi 80% af meðaltekjum hennar samkvæmt skrá skattyfirvalda. Útreikningur greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði til kæranda var miðaður við tekjur hennar tímabilið apríl 2003 til mars 2004.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við 12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs. Í greinargerð með lagafrumvarpinu er tekið fram að hér sé átt við almanaksmánuði.

Í 3. mgr. 15. gr. ffl. er kveðið á um að útreikningar á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Tryggingastofnun ríkisins aflar um tekjur starfsmanns eða sjálfstætt starfandi foreldris úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá skattyfirvalda. Ef foreldri telur upplýsingar úr viðkomandi skrám ekki réttar skal það leggja fram gögn því til staðfestingar.

Í 2. mgr. 13. gr. og 3. mgr. 15. gr. ffl. er að finna skýr fyrirmæli um það hvernig greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði skuli reiknaðar út. Útreikningur á greiðslum til kæranda var, í samræmi við ákvæði þessi, byggður á tekjum kæranda samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK tímabilið apríl 2003 til mars 2004, eins og fyrr segir.

Þar sem enga heimild er að finna í lögum til að víkja frá framangreindri reglu 2. mgr. 13. gr. ffl. telur lífeyristryggingasvið að ekki sé heimilt að taka til greina ósk kæranda um að útreikningur fæðingarorlofsgreiðslna miðist við annað en kveðið er á um í 2. mgr. 13. gr. ffl., þ.e. meðaltal heildarlauna kæranda á 12 mánaða samfelldu tímabili sem lauk tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs hennar. Þá telur lífeyristryggingasvið ekkert fram komið í málinu þess efnis að ætla megi að upplýsingar úr skrám skattyfirvalda varðandi tekjur kæranda séu rangar. Því telur lífeyristryggingasvið í ljósi alls framangreinds að áðurnefnt bréf lífeyristryggingasviðs til kæranda, dags. 8. júní 2004, beri með sér réttan útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 8. október 2004, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um breytingu á útreikningi á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Afgreiðsla málsins hefur dregist nokkuð meðal annars vegna anna hjá úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) skal mánaðarleg greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði til starfsmanns í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs, sbr. og 2. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 909/2000 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Í 5. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 909/2000 segir að meðaltal heildarlauna skuli miðast við þann fjölda mánaða á umræddu viðmiðunartímabili sem foreldri hafi sannanlega verið á vinnumarkaði í a.m.k. 25% starfi. Fram kemur í athugasemdum með frumvarpi til laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof að miða skuli við almanaksmánuði við útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Samkvæmt gögnum málsins hóf kærandi fæðingaorlof þann 17. júní 2004. Með hliðsjón af því verður viðmiðunartímabilið við útreikning greiðslna í fæðingarorlofi frá apríl 2003 til og með mars 2004 sbr. 2. mgr. 13. gr. ffl.

Lög um fæðingar- og foreldraorlof heimila ekki að vikið sé frá reglu 2. mgr. 13. gr. laganna við útreikning greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Verður því ekki fallist á kröfu kæranda um breytingu á útreikningi. Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins er því staðfest. 

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um greiðslu til A í fæðingarorlofi er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum