Hoppa yfir valmynd
17. september 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Fundað um framtíð handritanna

Rúnar Leifsson sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneyti, Gottskálk Jensson lektor í handritafræðum, Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Páll Magnússon þingmaður og formaður allsherjar- og menntamálanefndar, skoða handrit frá 12. öld í Árnasafni í Kaupmannahöfn. - mynd
Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra fundaði í Kaupmannahöfn í dag með Ane Halsboe-Jørgensen, menntamálaráðherra Danmerkur. Auk þess heimsótti ráðherra Árnasafn í Kaupmannahöfn.

Á fundi ráðherranna lýsti mennta- og menningarmálaráðherra yfir áhuga Íslendinga á að endurskoða skiptingu handrita, m.a. úr safni Árna Magnússonar, en um 700 íslensk handrit eru enn varðveitt í Danmörku. Ráðherrarnir sammæltust um að hefja undirbúning að stofnun samráðsnefndar um sameiginleg menningarverðmæti þjóðanna. Nefndin mun fá það verkefni að rýna og efla samstarf þjóðanna á þessu sviði, móta tillögur að framtíðarfyrirkomulagi um varðveislu þeirra handrita sem nú eru í Danmörku, huga að því hvernig þjóðirnar geti stutt hvor aðra í ræktun móðurmála á tímum alþjóðavæðingar og hvernig nýta megi sameiginlegan menningarf Íslands og Danmerkur á þeirri vegferð.

„Við áttum uppbyggilegan fund sem ég vona að beri góðan ávöxt í framtíðinni. Það hefur orðið viðhorfsbreyting á þeim tæpu 50 árum sem liðin eru frá því að fyrstu handritunum var skilað heim til Íslands – bæði hér í Danmörku og heima á Íslandi. Ég tel mikilvægt á þessum tímapunkti að við ræðum framtíð handritanna og fagna því að Danir séu reiðubúnir til viðræðna,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
  • Fundað um framtíð handritanna - mynd úr myndasafni númer 1
  • Fundað um framtíð handritanna - mynd úr myndasafni númer 2
  • Fundað um framtíð handritanna - mynd úr myndasafni númer 3
  • Fundað um framtíð handritanna - mynd úr myndasafni númer 4

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum