Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2019 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 7/2019 Úrskurður 28. janúar 2019

Mál nr. 7/2019                      Millinafn:       Eðvald

 

 

Hinn 28. janúar 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 7/2019 en erindið barst nefndinni 22. janúar 2019.

Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Eðvald hefur unnið sér hefð sem eiginnafn karla og fullnægir þess vegna ekki skilyrðum 6. gr. laga um mannanöfn.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Eðvald er hafnað.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum