Hoppa yfir valmynd
26. júlí 2019 Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd um hæfni dómara skilar umsögn

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni um umsækjendur um embætti dómara við Landsrétt sem auglýst var laust til umsóknar 3. maí síðastliðinn. Umsóknarfrestur var til 20. maí og bárust alls átta umsóknir. Einn umsækjenda uppfyllti ekki almenn hæfisskilyrði fyrir skipun í embættið og einn umsækjandi dróg umsókn sína til baka.

Niðurstaða dómnefndar er að Eiríkur Jónsson prófessor sé hæfastur umsækjenda til þess að verða skipaður dómari við Landsrétt.

Dómnefndina skipuðu: Eiríkur Tómasson formaður, Halldór Halldórsson, Óskar Sigurðsson, Sigríður Þorgeirsdóttir og Valtýr Sigurðsson.

Umsögn dómnefndar má lesa hér.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum