Hoppa yfir valmynd
16. mars 2012 Heilbrigðisráðuneytið

Nýjar upplýsingar um PIP brjóstafyllingar

Samkvæmt nýjum upplýsingum sem frönsk yfirvöld hafa gefið út er ekki unnt að útiloka að PIP brjóstafyllingar sem framleiddar voru fyrir árið 2001 séu gallaðar. Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa því ákveðið að fyrra tilboð stjórnvalda um heilbrigðisþjónustu við konur með PIP brjóstafyllingar taki til allra kvenna sem fengið hafa slíkar fyllingar frá því að byrjað var að framleiða þær árið 1992.

Heilbrigðisyfirvöld hafa frá síðustu áramótum verið í beinum samskiptum við hlutaðeigandi yfirvöld og eftirlitsstofnanir í Evrópu og fylgst grannt með þróun mála varðandi PIP brjóstafyllingarnar. Hafa ákvarðanir hérlendra stjórnvalda verið endurskoðaðar eftir því sem nýjar upplýsingar hafa komið fram.

Íslensk heilbrigðisyfirvöld tilkynntu um aðgerðir vegna PIP brjóstapúðamálsins 10. janúar 2012. Var þá ákveðið að bjóða öllum konum sem fengið hefðu ígræddar PIP brjóstafyllingar frá árinu 2000 í ómskoðun til að kanna ástand fyllinganna. Á þeim tíma lágu fyrir upplýsingar frá frönsku eftirlitsstofnuninni AFSSAPS sem hefur eftirlit með lækningatækjum um að PIP brjóstafyllingar sem framleiddar hefðu verið frá árinu 2000/2001 væru gallaðar.

Í kjölfar skýrslu sérfræðingahóps Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, SCENIHR um PIP brjóstapúðamálið sem kom út í byrjun febrúar síðastliðnum, var ákveðið að auka við fyrra tilboð hérlendra stjórnvalda. Þetta var gert í samræmi við faglegt mat Embættis landlæknis og var ákveðið að bjóða öllum konum með PIP brjóstafyllingar að fjarlægja brjóstapúðana óskuðu þær eftir því.

Ekki liggja fyrir að svo stöddu upplýsingar um fjölda kvenna hér á landi sem fengið hafa ígrædda PIP brjóstapúða á árunum 1992-2001. Velferðarráðuneytið, Embætti landlæknis og Lyfjastofnun munu á næstu dögum fara yfir málið og afla nauðsynlegra upplýsinga.

Á vef velferðarráðuneytisins eru birtar spurningar og svör um boð stjórnvalda um heilbrigðisþjónustu við konur með PIP brjóstafyllingar.

Velferðarráðuneytið

Embætti landlæknis og Lyfjastofnun

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum