Hoppa yfir valmynd
17. desember 2020 Utanríkisráðuneytið

Efla kennslu í vísindum við framhaldsskóla í Buikwe

Myndin tekin eftir undirritun samninga í morgun. Ljósmynd: MS - mynd

Innan tíðar hefjast framkvæmdir við fjóra framhaldsskóla í fiskveiðisamfélögum í Buikwe héraði í Úganda þar sem byggðar verða sérstakar skólastofur til að efla kennslu í vísindum og upplýsingatækni. Skrifað var undir samninga um framkvæmdirnar í morgun að viðstöddum fulltrúum sendiráðs Íslands í Kampala, fulltrúum héraðsstjórnarinnar í Buikwe og fulltrúum verktaka sem áttu lægstu tilboð í verkið.

Að sögn Finnboga Rúts Arnarsonar starfandi forstöðumanns sendiráðsins er markmiðið með þessmu hluta menntaverkefnis í héraðinu að auðvelda rúmlega fjögur þúsund framhaldsskólanemum í Buikwe að auka við vísindalega þekkingu sína í samræmi við opinbera menntastefnu Úganda og bæta aðstæður kennara til að kynda undir áhuga nemenda á vísindum og tækni. „Allt er þetta liður í því að skólarnir veiti gæðamenntun sem leggur grunn að betri lífsafkomu og stuðlar að sjálfbærri þróun Úganda,“ segir Finnbogi Rútur.

Heildarkostnaður við verkið er metinn á rúmlega 142 milljónir íslenskra króna en hluti af þeirri fjárhæð rennur til kaupa á kennslubókum og öðrum námsgögnum fyrir alla nemendur grunnskóla í fiskimannasamfélögunum í listsköpun, tónlist, dansi og leiklist.

Buikwe er megin samstarfshérað Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu í Úganda. Einkum hefur verið unnið að því í samstarfi við héraðsstjórnina að bæta menntun barna og ungmenna en einnig hefur verið unnið að því að tryggja íbúum fiskveiðisamfélaga hreint vatn og bæta salernisaðstöðu.

Við undirritun samninga í morgun bað fulltrúi héraðsins fyrir kveðjur til Íslendinga með þakkæti fyrir veittan stuðning.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

4. Menntun fyrir öll
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum