Hoppa yfir valmynd
3. febrúar 2022 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 558/202 - Úrskurður

 

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 558/2021

Fimmtudaginn 3. febrúar 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 28. október 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. október 2021, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.  

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslu atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 9. júlí 2021 og var umsókn hans samþykkt þann 8. september 2021. Þann 5. október 2021 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 12. október 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á umræddu starfi. Skýringar bárust frá kæranda samdægurs. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. október 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. október 2021. Með bréfi, dags. 2. nóvember 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 17. desember 2021 og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. desember 2021. Athugasemdir bárust ekki.

 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi verið tekinn af atvinnuleysisbótum í refsiskyni. Honum hafi verið boðið starf hjá B í gegnum Vinnumálastofnun sem verkstjóri yfir byggingu iðnaðarhúsnæðis í Hafnarfirði. Kærandi hafi samið um kaup og kjör við vinnuveitandann og hafi samskipti gengið vel. Til öryggis og að ráðum góðra manna hafi kærandi látið skoða feril vinnuveitandans og hafi þá komið í ljós löng saga gjaldþrota og vanskil á staðgreiðslu skatta. Kærandi hafi upplýsingar um það að vanskil staðgreiðslu hjá B hafi verið þrír mánuðir hið minnsta. Jafnframt hafi kærandi átt samtal við fyrrum starfsmann fyrirtækisins sem hafi fengið óþægilega heimsókn á heimili sitt þar sem honum hafi verið hótað barsmíðum ef hann greiddi þeim ekki vangoldin laun. Kærandi spyrji hver vilji ráða sig í vinnu hjá slíku fyrirtæki og hvort það eigi að refsa honum fyrir að vilja það ekki. Hann spyrji hvort Vinnumálastofnun skoði fyrirtækin ekki sem séu að óska eftir starfsfólki. Enn fremur nefnir kærandi að fyrirtækið sé ekki í skilum með lífeyrissjóðsiðgjöld. Kærandi sé í áfalli eftir að hafa fengið þessa meðferð og gerir þá kröfu að mál hans verði lagað sem fyrst. Kærandi gerir einnig þá kröfu að fá uppgefin nöfn þeirra starfsmanna Vinnumálastofnunar sem ákveði örlög hans.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 9. júlí 2021. Með erindi, dags. 8. september 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Þann 5. október 2021 hafi Vinnumálastofnun borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Um hafi verið að ræða fullt starf við verkstjórn í byggingarframkvæmdum en stofnunin hafi miðlað kæranda í umrætt starf. Samkvæmt upplýsingum frá B hafi kærandi afþakkað starfið.

Með erindi, dags. 12. október 2021, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda á höfnun á starfi hjá B. Athygli kæranda hafi jafnframt verið vakin á því að hafi atvinnuleitandi hafnað atvinnutilboði eða atvinnuviðtali án gildra ástæðna, gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga. Sama dag hafi Vinnumálastofnun borist skýringar kæranda vegna höfnunar á umræddu atvinnutilboði. Kærandi hafi tekið fram að hann hafi átt samtal við eigendur B þar sem samið hafi verið um kaup og kjör vegna starfsins. Við nánari skoðun hans hafi komið í ljós að B hafi verið í vanskilum með staðgreiðslu skatta. Þá hafi kærandi haft samband við fyrrum samstarfsaðila B sem hafi lýst innrás handrukkara á heimili sitt. Vegna þessa hafi kærandi ekki treyst sér til að taka starfinu.

Þann 26. október 2021 hafi kæranda verið tilkynnt að skýringar hans vegna höfnunar á starfi hefðu ekki verið metnar gildar og að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans væru stöðvaðar. Ákvörðunin hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi þó verið tjáð að ef stofnuninni bærust gögn til stuðnings skýringum hans kynni fyrri ákvörðun stofnunarinnar að vera tekin upp að nýju.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 28. október 2021. Í kæru sé að finna efnislega samhljóða skýringar og kærandi hafi veitt Vinnumálastofnun þann 12. október 2021. Kærandi greini frá því að hann hafi haft samband við starfsmann sýslumanns sem hafi tjáð honum að B væri í vanskilum vegna staðgreiðslu skatta. Skýringum kæranda í kæru hafi jafnframt fylgt gögn sem kærandi hafi sagt gefa mynd af tengslaneti eiganda B.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað starfi hjá B. Því komi til álita hvort þær skýringar sem kærandi hafi veitt stofnuninni og úrskurðarnefnd velferðarmála séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að þeir hafi til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslna atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. 

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi. Ákvæðið sé svohljóðandi: 

,,Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg, en í 4. mgr. segi orðrétt:

,,Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitenda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Skýringar kæranda snúi að því að hann hafi ekki treyst sér að taka því starfi sem honum hafi boðist hjá B. Kærandi telji sig búa yfir upplýsingum sem renni stoðum undir það að fyrirtækið sé í vanskilum þegar komi að greiðslu staðgreiðsluskatta. Þá hafi fyrri starfsmenn fyrirtækisins greint kæranda frá raunum sínum í samskiptum við fyrirtækið. Að mati Vinnumálastofnunar séu skýringar kæranda ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfi. Atvinnuleitendur geti almennt ekki hafnað starfi vegna þeirrar ástæðu einnar að þeir búi yfir grun um að atvinnurekandi eða tengdir aðilar kunni að vera í vanskilum þegar komi að greiðslu opinberra gjalda. Þá verði ekki séð að þau gögn sem kærandi hafi látið fylgja með kæru sinni til úrskurðarnefndarinnar hafi gildi í máli hans. Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnutilboði, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun vilji jafnframt vekja athygli á því að við móttöku umsóknar um atvinnuleysistryggingar veiti Vinnumálastofnun öllum atvinnuleitendum leiðbeiningar um hvar finna megi upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda. Þá sé öllum atvinnuleitendum vísað á heimasíðu Vinnumálastofnunar þar sem meðal annars sé að finna skýrar upplýsingar um afleiðingar þess að hafna starfi, án gildra ástæðna. Ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar séu skýr hvað varði skyldu atvinnuleitanda til að taka störfum sem í boði séu og um höfnun á atvinnutilboðum.

Með vísan til alls framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboði hjá B geti ekki talist gildar í skilningi laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

 

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Óumdeilt er að kærandi hafnaði starfstilboði hjá B en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður kæranda fyrir þeirri höfnun hafi verið réttlætanlegar í skilningi 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Kærandi hefur meðal annars vísað til þess  að hann hafi ekki treyst sér til að starfa hjá fyrirtækinu sökum þess að fyrirtækið væri í þriggja mánaða vanskilum með staðgreiðslu skatta og að eigandi fyrirtækisins væri beinn aðili 20 gjaldþrota.

Að mati úrskurðarnefndarinnar eru þær ástæður og skýringar sem kærandi hefur gefið ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laganna er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir, sbr. c-lið 1. mgr. ákvæðisins.

Kærandi krefst þess að fá upplýsingar um nöfn starfsmanna Vinnumálastofnunar sem tóku ákvarðanir í máli hans. Af gögnum málsins verður ráðið að kærandi hafi ekki beint þeirri kröfu til Vinnumálastofnunar og að fyrir liggi synjun þess efnis. Sá þáttur kærunnar kemur því ekki til skoðunar hjá úrskurðarnefndinni.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. október 2021, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum