Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2010 Dómsmálaráðuneytið

Kjósendur á kjörskrárstofni eru 230.014 talsins

Sveitarstjórnir semja kjörskrár eftir kjörskrárstofnum sem Þjóðskrá lætur þeim í té. Á kjörskrárstofnum vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. mars 2010 eru 230.014 kjósendur, konur eru 115.400 en karlar 114.614. Konur eru því 786 eða 0,7% fleiri en karlar. Við alþingiskosningarnar 25. apríl 2009 voru 227.843 á kjörskrá og nemur fjölgunin 2.171 eða 0,9%.

Í endanlegri tölu kjósenda á kjörskrá, sem birt verður í skýrslu Hagstofunnar um atkvæðagreiðsluna, verður tekið tillit til fjölda látinna og þeirra sem fá nýtt ríkisfang eftir að kjörskrárstofnar voru unnir, svo og breytinga sem verða á kjörskrá vegna leiðréttinga.

Kjósendur með lögheimili erlendis eru 11.154 eða 4,8% kjósenda og hefur þeim fjölgað um 1.213 frá síðustu alþingiskosningum eða um 12,4%. Kjósendum með lögheimili hér á landi fjölgar um 888 eða 0,4%. Þeir sem vegna aldurs fá nú að kjósa í fyrsta sinn frá alþingiskosningunum 2009 eru 4.020 eða 1,7% af kjósendatölunni.

Í lögum nr. 4, 11. janúar 2010, um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu um gildi laga nr. 1/2010 segir að um kosningarrétt og kjörskrár til afnota í atkvæðagreiðslunni skv. 1. gr. fari á sama hátt og við alþingiskosningar. Kjörskrár skulu þó miðaðar við íbúaskrá Þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag, þ.e. 13. febrúar.

Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 á kosningarrétt við kosningar til Alþingis hver íslenskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri þegar kosning fer fram og á lögheimili hér á landi.  Íslenskur ríkisborgari, sem náð hefur 18 ára aldri og átt hefur lögheimili hér á landi, á og kosningarrétt í átta ár frá því að hann flutti lögheimili af landinu, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Slíkur ríkisborgari á og kosningarrétt hér á landi eftir þann tíma, enda sé um það sótt. Ákvörðun um að einhver sé þannig á kjörskrá tekinn gildir í fjögur ár frá 1. desember næstum eftir að umsókn var lögð fram. Nú er á kjörskrárstofnum 813 kjósendur sem svo stendur á um.

Sjá nánar á vef Hagstofunnar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum