Hoppa yfir valmynd
17. maí 2016 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 175/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 17. maí 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 175/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16030025

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, sem barst kærunefnd útlendingamála þann 14. mars 2016, kærði […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. febrúar 2016, um að synja honum um endurnýjun á dvalarleyfi vegna náms.

Kærandi gerir þá kröfu að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og kæranda veitt dvalarleyfi hér á landi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 30. gr. laga nr. 96/2002, um útlendinga, og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kæranda var fyrst veitt dvalar- og atvinnuleyfi vegna námsdvalar með gildistíma frá 16. október 2013 til 1. febrúar 2014. Það leyfi var endurnýjað fjórum sinnum, síðast með gildistíma til 1. febrúar 2016. Þann 23. desember 2015 sótti kærandi um endurnýjun á dvalarleyfinu og var þeirri umsókn hafnað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. febrúar sl. Sú ákvörðun var kærð til kærunefndar þann 14. mars 2016. Kærunefnd óskaði samdægurs eftir athugasemdum Útlendingastofnunar vegna kærunnar ef einhverjar væru auk afrits af gögnum málsins. Umbeðin gögn bárust kærunefnd 16. og 18. mars 2016. Greinargerð kæranda barst samtímis kæru.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Ákvörðun Útlendingastofnunar byggir á því að kærandi uppfylli ekki skilyrði b-liðar 1. mgr. 12. gr. e útlendingalaga, sbr. 4. mgr. 12. gr. laganna, þar sem kærandi hafi ekki lokið a.m.k. 75% af fullu námi og þannig ekki sýnt fram á viðunandi námsárangur til endurnýjunar dvalarleyfis vegna náms. Kærandi hafi aðeins lokið 13,5 ECTS einingum eða 45% af fullu námi á haustönn 2015 og fullnægi því ekki framangreindum skilyrðum laga um útlendinga. Í ákvörðuninni kemur fram að í gögnum málsins komi fram að þetta sé fyrsta misserið þar sem kærandi uppfylli ekki lágmarksfjölda eininga. Kærandi hafi skilað inn til Útlendingastofnunar bréfi frá sálfræðingi við […]. Að mati stofnunarinnar sé engin heimild í 12. gr. e laga um útlendinga til að víkja frá skilyrðum um fullnægjandi námsárangur, hvorki vegna andlegra- eða annarra erfiðleika og hafi kærunefnd útlendingamála staðfest það í úrskurðum sínum. Á þeim grundvelli synjaði stofnunin umsókn kæranda um endurnýjun dvalarleyfis vegna náms.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að umsókn kæranda hafi verið hafnað þar sem hann hafi ekki skilað nægjanlegum einingafjölda á haustönn 2015. Ástæða þess hafi verið að kærandi […]. Einkennin sem hafi fylgt því hafi verið einbeitingarleysi, takmarkaður áhugi og mikil þreyta. Einkennin hafi verið í hámarki haustið 2015. Kærandi hafi fengið […] þegar einkennin hafi verið í hámarki allt skólaárið 2014-2015. Þar hafi hann verið greindur með áðurnefnd einkenni. Meðferðin hafi haft jákvæði áhrif á kæranda og hafi hann verið hvattur til að halda henni áfram. Kærandi hafi þó hætt [...]. Í dag sé kærandi skráður í fullt nám við Háskóla Íslands og sæki það fullur af metnaði. Því til viðbótar starfi hann á […] og hafi gert í þó nokkurn tíma. Kærandi fari fram á að honum verði gert mögulegt að endurnýja atvinnuleyfi sitt ef meðferð kæru hans dragist á langinn. Kærandi kveðst hafa búið á Íslandi í tvö og hálft ár með kærustunni sinni sem sé einnig nemandi við Háskóla Íslands. Hann hafi eignast vini hér á landi, stundi nám og vinni samhliða því og sé í góðum metum hjá yfirmanni sínum. Hann langi gjarnan að geta haldið áfram því námi sem hann hafi lagt stund á hér á landi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Mál þetta lýtur að því hvort Útlendingastofnun hafi verið rétt að synja umsókn kæranda um endurnýjun dvalarleyfis á grundvelli 4. mgr. 12. gr. e laga um útlendinga nr. 96/2002.

Í 4. mgr. 12. gr. e laga um útlendinga kemur fram að dvalarleyfi vegna náms samkvæmt ákvæðinu skuli að jafnaði ekki veitt til lengri tíma en sex mánaða í senn. Heimilt er að endurnýja dvalarleyfi vegna náms á námstíma ef útlendingur fullnægir áfram skilyrðum 1. og 2. mgr. 12. gr. e og getur sýnt fram á viðunandi námsárangur. Námsárangur telst samkvæmt ákvæðinu fullnægjandi hafi útlendingur lokið a.m.k. 75% af fullu námi. Við fyrstu endurnýjun dvalarleyfis telst námsárangur viðunandi hafi útlendingur lokið a.m.k. 50% af fullu námi. Samkvæmt 2. mgr. 12. gr. e laga um útlendinga telst fullt nám vera 100% samfellt nám á háskólastigi, iðnnám eða það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Þá teljast einstök námskeið ekki til náms. Í máli þessu var um það að ræða að kærandi sótti um framlengingu dvalarleyfis vegna náms og þurfti hann því að sýna fram á a.m.k. 75% námsárangur.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum lauk kærandi 13,5 ECTS einingum á haustönn 2015 eða um 45% af fullu námi. Ef litið er til námsárangurs skólaársins 2014-2015, auk haustannar 2015, lauk kærandi aðeins um 54% af fullu námi. Er þar með ljóst að ekki eru uppfyllt skilyrði 4. mgr. 12. gr. e fyrir því að dvalarleyfi kæranda vegna námsdvalar verði framlengt, en ekki er gert ráð fyrir því að unnt sé að víkja frá þessum skilyrðum ákvæðisins um námsframvindu af ástæðum líkt og þeim sem kærandi hefur tilgreint máli sínu til stuðnings. Ber þá þegar af þeirri ástæðu að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

ÚRSKURÐARORÐ

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Pétur Dam Leifsson, varaformaður Vigdís Þóra Sigfúsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum