Hoppa yfir valmynd
25. febrúar 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Fundur kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna

Fjármögnun jafnréttisbaráttunnar er aðalþema árlegs fundar kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem hefst í New York í dag. Fjörutíu og fimm ríki eiga sæti í nefndinni hverju sinni og lýkur kjörtímabili Íslands, sem átt hefur sæti í henni síðastliðin fjögur ár, með þessum fundi. Af því tilefni verður framlag Íslands til fundarins með veglegra sniði en undanfarin ár. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fer fyrir íslensku sendinefndinni, sem er óvenju stór, en um 30 fulltrúar, konur og karlar, sitja fundinn. Í þeim hópi eru fulltrúar frjálsra félagasamtaka, kostaðir af þeim, en einnig sækja fulltrúar félags- og tryggingamálaráðuneytis, Jafnréttisstofu og þingkonur fundinn.

Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna heyrir undir Efnahags- og félagsmálaráð SÞ (ECOSOC) og er markmið hennar að vinna að auknu jafnrétti karla og kvenna. Sú venja hefur skapast meðal Norðurlandaþjóðanna að eitt þeirra á þar ávallt sæti og tók Ísland sæti í nefndinni árið 2004. Svíar munu taka við keflinu af Íslendingum þegar fundinum lýkur 7. mars.

Utanríkisráðherra flytur ræðu á ráðherrafundi kvennanefndarinnar í dag og mun einnig taka þátt í hringborðsumræðum um reynsluna af jafnréttisbaráttunni, hvaða leiðir hafi gefist vel og hverjar síður. Í ræðu sinni mun Ingibjörg Sólrún leggja áherslu á jafnréttismál sem eitt af lykilatriðum íslenskrar utanríkisstefnu og málefni þar sem styrkleiki Íslands á alþjóðavettvangi liggi. Einnig mun hún kynna þróunarverkefni Íslendinga sem miða að því að bæta stöðu kvenna víðs vegar um heim.

Þá standa Norðurlöndin fyrir sameiginlegum hliðarviðburði þar sem fjallað verður um ráðstafanir til að berjast gegn ofbeldi karla gagnvart konum, heiðurstengt ofbeldi og ráðstafanir til að berjast gegn mansali. Utanríkisráðherra flytur þar ávarp og fjallar um hvað hefur verið gert til að koma í veg fyrir ofbeldi gagnvart konum á Íslandi.

Þá verður Ísland í kastljósinu miðvikudaginn 27. febrúar þegar Stígamót, Kvenréttindafélag Íslands og UNIFEM standa fyrir íslenskum hliðarviðburði sem kallast Gróska, kraftur, ánægja og fjallar um hvernig Íslendingar efli konur til dáða, um stöðu innflytjendakvenna og um óvenjulega sýn á fegurðina en heimildarmynd Matthildar Helgadóttur, Óbeisluð fegurð, verður sýnd. Enn fremur mun Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, kynna tilhögun feðraorlofs á Íslandi í umræðum á miðvikudag.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum