Hoppa yfir valmynd
1. mars 2022 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 21/2022 Úrskurður 1. mars 2022

Mál nr. 21/2022                    Eiginnafn:     Villiblóm 

 

 

Hinn 1. mars 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 21/2022 en erindið barst nefndinni 3. febrúar. 

 

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

 

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Villiblóm tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Villiblóms, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Villiblóm er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá yfir kynhlutlaus nöfn.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum