Hoppa yfir valmynd
14. apríl 2014 Innviðaráðuneytið

Stýrihópur kannar mögulegar samgönguframkvæmdir með aðkomu einkaaðila

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur skipað stýrihóp til að fara yfir hvaða  samgönguframkvæmdir kæmu til greina í samvinnu ríkis og einkaaðila. Formaður hópsins er Helga Valfells hagfræðingur og var fyrsti fundur haldinn í ráðuneytinu nýverið.

Stýrihópur kannar mögulega samvinnu hins opinbera og einkaaðila við samgönguframkvæmdir.
Stýrihópur kannar mögulega samvinnu hins opinbera og einkaaðila við samgönguframkvæmdir.

Innanríkisráðherra hefur að undanförnu farið yfir með hvaða hætti væri mögulegt að fjármagna ýmis brýn samgönguverkefni með öðru móti en beinum framlögum úr ríkissjóði. Ljóst er að um leið og minna fé hefur á síðustu árum verið veitt í stofnframkvæmdir í vegakerfinu fer þörfin sífellt vaxandi og því hefur verið ákveðið að kanna rækilega hvaða framkvæmdir unnt væri að ráðast í með samvinnu ríkis og einkaaðila, allt frá undirbúningi og hönnun og að rekstri og þjónustu við slík mannvirki.

Stýrihópnum hefur nú verið falið að fara yfir þau verkefni sem gætu fallið undir þetta fyrirkomulag og kanna fleiri kosti.

Stýrihópinn skipa auk Helgu þau Erlendur Magnússon, sjálfstætt starfandi, Jóhanna Harpa Árnadóttir, verkfræðingur, Karl Björnsson, framkvæmdastjóri og Þorsteinn Rúnar Hermannsson, verkfræðingur. Fyrir hópinn starfar Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sérfræðingur í innanríkisráðuneytinu, og sérstakur fulltrúi ráðherra.

Á myndinni eru frá vinstri Tryggvi Þórhallsson, lögfræðingur Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem sat fyrsta fundinn fundinn í fjarveru Karls Björnssonar, Erlendur Magnússon, Helga Valfells, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Jóhanna Harpa Árnadóttir og Þorsteinn Rúnar Hermannsson.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum