Hoppa yfir valmynd
5. ágúst 2015 Forsætisráðuneytið

30. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Vinna sérfræðingahópa og áframhaldandi vinna við fyrirliggjandi textadrög
  3. Önnur mál

Fundargerð

30. fundur – haldinn miðvikudaginn 5. ágúst 2015, kl. 10.00, í Safnahúsinu, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Róbert Marshall, sem tilnefndur hefur verið til setu í nefndinni af hálfu Bjartrar framtíðar, Valgerður Bjarnadóttir og Valgerður Gunnarsdóttir.  

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 29. fundar, sem haldinn var miðvikudaginn 8. júlí 2015, var send nefndarmönnum með tölvupósti þann 15. júlí sl. Fundargerðin var samþykkt án athugasemda.

2. Vinna sérfræðingahópa og áframhaldandi vinna við fyrirliggjandi textadrög

Fjallað var um fyrirliggjandi textadrög og vinnu sérfræðingahópa. Fulltrúar eins hóps komu á fund nefndarinnar til að gefa skýringar og svara fyrirspurnum nefndarmanna.

Samþykkt var að fela formanni að vinna úr umræðum nefndarmanna, eftir atvikum í samvinnu við sérfræðingahópa, og stefnt að því að uppfærð drög liggi fyrir á næsta fundi.

3. Önnur mál

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12.00.

SG ritaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum