Hoppa yfir valmynd
16. desember 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 555/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 555/2021

Fimmtudaginn 16. desember 2021

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 22. október 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. apríl 2020, um að fella niður bótarétt hans í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. apríl 2020, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi óskaði eftir endurskoðun málsins og með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 5. maí 2020, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun væri staðfest. Í janúar 2021 fór kærandi á ný fram á að mál hans yrði tekið til endurskoðunar og með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 1. febrúar 2021, var þeirri beiðni synjað.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. október 2021. Með bréfi til Vinnumálastofnunar, dags. 27. október 2021, var óskað eftir afriti af öllum gögnum málsins. Umbeðin gögn bárust 24. nóvember 2021.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að síðasti tölvupóstur frá Vinnumálastofnun hafi borist 20. september 2021 en mál hans hafi ekki enn verið útskýrt. Kærandi hafi hvorki fengið tölvupóst né smáskilaboð um fund þann 19. febrúar 2020. Kæranda hafi verið refsað, án þess að mál hans hafi verið upplýst. Vinnumálastofnun geti ekki sannað að skilaboðin hafi verið send og komið til skila. Kærandi beri enga sök í málinu og refsingin sé ekki á rökum reist. Kærandi sé ekki sammála ákvörðuninni og óski því eftir að mál hans fari fyrir dóm og til saksóknara. Hann vænti greiðslna frá Vinnumálastofnun með vöxtum svo og skaðabóta.

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 8. apríl 2020 um að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Hin kærða ákvörðun var tilkynnt kæranda með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 8. apríl 2020, en ákvörðunin var kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála með kæru, móttekinni 22. október 2021. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þess að kæra í máli þessu barst einu og hálfu ári eftir að ákvörðun var tilkynnt kæranda er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum