Hoppa yfir valmynd
30. desember 2016 Innviðaráðuneytið

Vegna umfjöllunar um lokun flugbrautar 06-24 á Reykjavíkurflugvelli

Vegna fréttaflutnings af lokun flugbrautar 06-24 á Reykjavíkurflugvelli og umfjöllunar í fjölmiðlum um mögulega notkun hennar vegna sjúkraflugs þrátt fyrir lokun vill innanríkisráðuneytið taka eftirfarandi fram:

Flugbraut 06-24 á Reykjavíkurflugvelli var lokað í kjölfar dóms Hæstaréttar um að brautinni skyldi lokað en dómurinn féll vegna málshöfðunar Reykjavíkurborgar á hendur ríkinu þar sem lokunar var krafist.

Flugbraut með hliðstæða stefnu á Keflavíkurflugvelli, 07-25, hefur verið lokuð undanfarin ár en nú er til skoðunar hvort unnt verður að opna hana á ný. Vilji innanríkisráðherra til þess að opna þá flugbraut í stað hinnar lokuðu brautar á Reykjavíkurflugvelli er skýr.

Að ósk ráðuneytisins setti Isavia ohf. fram í haust áætlun um kostnað við að opna flugbaut 07-25 á Keflavíkurflugvelli og setti fram þrjá kosti. Í ráðuneytinu er nú farið yfir þessa möguleika og metið hvort og hvaða leið unnt er að fara með tilliti til kostnaðar og mögulegra fjárveitinga til verkefnisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum