Hoppa yfir valmynd
30. september 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

340/2020

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 340/2020

Miðvikudaginn 30. september 2020

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Anna Rut Kristjánsdóttir lögfræðingur og Kristinn Tómasson læknir.

Með rafrænni kæru, móttekinni 9. júlí 2020, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála afgreiðslu Tryggingastofnunar ríkisins frá 2. júlí 2020 á umsókn kæranda um uppbót/styrk til kaupa á bifreið.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um uppbót/styrk til kaupa á bifreið með umsókn, dags. 24. júní 2020. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 2. júlí 2020, var umsókn kæranda um uppbót til bifreiðakaupa samþykkt.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. júlí 2020. Með bréfi, dags. 23. júlí 2020, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 4. ágúst 2020, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 6. ágúst 2020. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi hafi einungis fengið 360.000 kr. styrk en hún eigi mjög erfitt með gang og geti ekki gengið lengra en um 30 metra og „stokkbólgna upp“. Kærandi þurfi bifreið sem hún setjist beint upp í en fyrir þessa upphæð sé ekki hægt að fá slíka bifreið.

III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærð sé synjun á umsókn um styrk samkvæmt 4. gr. reglugerðar nr. 170/2009 um styrki og uppbætur hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða, en veitt hafi verið uppbót til kaupa á bifreið í tilviki kæranda samkvæmt 3. gr. sömu reglugerðar.

Nánar tiltekið sé kærð ákvörðun Tryggingastofnunar þess efnis að kærandi uppfylli læknisfræðileg skilyrði til þess að fá uppbót til bifreiðakaupa samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 270/2009 um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða, sbr. bréf stofnunarinnar, dags. 2. júlí 2020.

Kærandi telji sig uppfylla læknisfræðileg skilyrði styrks til bifreiðakaupa samkvæmt 3. tölul. 2. mgr. 4. gr. sömu reglugerðar.

Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð sé heimilt að greiða elli- og örorkulífeyrisþega, örorkustyrksþega og umönnunargreiðsluþega uppbót vegna kaupa á bifreið sem bótaþega sé nauðsyn að hafa vegna hreyfihömlunar ef sýnt sé að bótaþegi geti ekki komist af án uppbótarinnar.

Samkvæmt 3. mgr. 10. gr. laga um félagslega aðstoð sé Tryggingastofnun heimilt að veita styrk til að afla bifreiðar sem nauðsynleg sé vegna þess að líkamsstarfsemi sé hömluð eða líkamshluta vanti.

Í 3. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 170/2009 segi að með líkamlegri hreyfihömlun sé átt við sjúkdóm eða fötlun sem skerði verulega færni til að komast ferða sinna þannig að göngugeta sé að jafnaði minni en 400 metrar á jafnsléttu. Þar sé fyrst og fremst um að ræða:

  1. Lömun eða skertan hreyfanleika í ganglimum af völdum sjúkdóms eða fötlunar,
  2. Mæði vegna hjarta- eða lungasjúkdóma,
  3. Annað sambærilegt.

Rétt sé að taka fram að þegar rætt sé um annað sambærilegt í c. lið 3. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar sé átt við líkamlega hreyfihömlun sem hafi áhrif á göngugetu. Sú túlkun og framkvæmd sé í samræmi við það sem tíðkast í nágrannalöndum okkar. Megi meðal annars sjá þetta í skýrslu starfshóps velferðarráðuneytisins um stuðningskerfi til að auðvelda för hreyfihamlaðs fólks, en þar sé sérstaklega farið í þetta atriði á bls. 21 og 22. Skýrslan hafi verið birt á vef velferðarráðuneytisins þann 19. desember 2014 og megi finna þar.

Í 1.-3. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 170/2009 komi einnig fram að heimilt sé að greiða elli- og örorkulífeyrisþegum og örorkustyrksþegum uppbót vegna kaupa á bifreið sem bótaþega sé nauðsyn að hafa vegna hreyfihömlunar ef sýnt sé að bótaþegi komist ekki af án uppbótarinnar. Skilyrði 2. og 3. mgr. 3. gr. hljóði svo:

Uppbót er eingöngu heimilt að veita þegar eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:

1. Hinn hreyfihamlaði hefur sjálfur ökuréttindi eða annar heimilismaður.

2. Nauðsyn á bifreið vegna hreyfihömlunar er ótvíræð og mat á hreyfihömlun liggi fyrir.

Við mat á umsóknum skal fyrst og fremst líta á bifreiðina sem hjálpartæki hreyfihamlaðra og hvort umsækjandi þurfi bifreið til að komast ferða sinna, s.s. til vinnu, í skóla, sækja reglubundna endurhæfingu eða læknismeðferð.“

Strangari kröfur séu gerðar til þeirra sem hljóti styrk samkvæmt 4. gr. reglugerðarinnar, sbr. 3. mgr. 10. gr. laga um félagslega aðstoð. Í þeim tilvikum sé skilyrði að umsækjandi sé verulega hreyfihamlaður og noti til dæmis tvær hækjur og/eða sé bundinn hjólastól að staðaldri. Markmið styrksins sé að koma til móts við þá sem séu verr settir en þeir sem fái uppbót og þurfi meira rými vegna fötlunar sinnar. Til þess að fá styrkinn þurfi umsækjandi því meðal annars að sýna fram á að hreyfihömlun hans sé svo veruleg og að hjálpartækjaþörf hans sé slík að umsækjandi þurfi að miða bifreiðakaup sín við þessi hjálpartæki og þurfi því stærri bíl en einstaklingur sem uppfylli skilyrði 3. gr. reglugerðarinnar. Skilyrði 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar hljóða svo:

Styrkur skal vera kr. 1.440.000 og skal eingöngu veittur þegar eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:

1. Hinn hreyfihamlaði hefur sjálfur ökuréttindi eða annar heimilismaður.

2. Nauðsyn á bifreið vegna hreyfihömlunar er ótvíræð og mat á hreyfihömlun liggur fyrir.

3. Einstaklingur er verulega hreyfihamlaður og er t.d. bundinn hjólastól og/eða notar tvær hækjur að staðaldri.

4. Mat á ökuhæfni liggur fyrir.

5. Hinn hreyfihamlaði er sjúkratryggður hér á landi, sbr. 10. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar.“

Einnig sé skilyrði samkvæmt 4. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar að mat liggi fyrir um þörf á bifreið með hliðsjón af notkun hjálpartækja.

Við mat á því hvort skilyrði um verulega hreyfihömlun sé uppfyllt þurfi að fara fram einstaklingsbundið mat í hverju tilviki fyrir sig.

Kærandi hafi sótt um uppbót/styrk til kaupa á bifreið samkvæmt 3. og 4. gr. reglugerðar nr. 170/2009 með umsókn, dags. 24. júní 2020. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 2. júlí 2020, hafi umsókn kæranda um uppbót samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 170/2009 til bifreiðakaupa verið samþykkt. Kærandi hafi hins vegar ekki verið talin uppfylla læknisfræðileg skilyrði styrks til bifreiðakaupa samkvæmt 4. gr. reglugerðarinnar.

Við mat á hreyfihömlun hafi legið fyrir læknisvottorð, dags. 30. janúar 2020. Í læknisvottorði vegna hreyfihömlunar komi fram að kærandi þjáist af iktsýki (e. rheumatoid arthritis) sem valdi liðbólgum og hafi auk þess sögu um lifrarbólgu C og berkla. Bólgunum fylgi verkir og þreyta. Samkvæmt færnimati (Health assessment questionnaire) og mati læknis í læknisvottorði sé líkamleg færni kæranda verulega skert.

Ekki komi fram hvort og þá að hvaða leyti sjúkdómur kæranda skerði færni hennar til þess að komast ferða sinna. Ekki sé gerð sérstaklega grein fyrir hreyfigetu kæranda. Ekki liggi fyrir að kærandi noti hjálpartæki á borð við hjólastól og/eða tvær hækjur sem geri það að verkum að hún þurfi meira rými í bifreiðum en ella.

Á þessum forsendum hafi skilyrði um hreyfihömlun verið talin uppfyllt en ekki viðbótarskilyrði vegna styrks.

Tryggingastofnun ráði af gögnum málsins að kærandi búi við hreyfihömlun. Af fyrrgreindu læknisvottorði megi hins vegar ráða að kærandi notist ekki við hjálpartæki. Tryggingastofnun telji því að ekki verði ráðið af sjúkdómsástandi kæranda að hún sé hreyfihömluð til jafns við þá sem bundnir séu hjólastól eða háðir því að nota tvær hækjur að staðaldri.

Það sé því mat Tryggingastofnunar, með vísan til framangreinds, að kærandi uppfylli læknisfræðileg skilyrði 3. gr. reglugerðar nr. 170/2009 en ekki viðbótarskilyrði 3. tölul. 2. mgr. 4. gr. sömu reglugerðar um hreyfihömlun. Í 4. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar sé lögð sérstök áhersla á það að meta skuli kostnað vegna bifreiðakaupa út frá hjálpartækjaþörfum umsækjanda. Ekkert hafi komið fram um að kærandi notist við hjálpartæki sem tengjast hreyfihömlun.

Við endurskoðun gagna sé þannig ekki hægt að sjá að kærandi sé verulega hreyfihömluð í þeim skilningi sem lagður sé í 3. tölul. 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar, þ.e. sé sambærilega hreyfihömluð og einstaklingur sem sé bundinn við hjólastól eða þurfi tvær hækjur.

Miðað við fyrirliggjandi gögn sé því ljóst að afgreiðsla málsins hafi verið að fullu og öllu í samræmi við lög og reglur og úrskurði velferðarnefndar í sambærilegum málum. Tryggingastofnun fari þar af leiðandi fram á að staðfest verði fyrri ákvörðun sín í málinu.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar afgreiðslu Tryggingastofnunar ríkisins á umsókn kæranda um uppbót/styrk til bifreiðakaupa.

Lagaheimild fyrir veitingu uppbótar/styrks til kaupa á bifreið er að finna í 10. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð. Í nefndri 10. gr. segir meðal annars svo:

„Heimilt er að greiða til elli- og örorkulífeyrisþega, örorkustyrkþega og umönnunargreiðsluþega uppbót vegna kaupa á bifreið sem bótaþega er nauðsyn að hafa vegna hreyfihömlunar ef sýnt er að bótaþegi geti ekki komist af án uppbótarinnar. Heimilt er að veita uppbót á fimm ára fresti vegna sama einstaklings.

[...]

Heimilt er að greiða styrk til að afla bifreiðar sem nauðsynleg er vegna þess að líkamsstarfsemi er hömluð eða vantar líkamshluta. Heimilt er að veita styrk á fimm ára fresti vegna sama einstaklings. Ráðherra setur reglugerð um greiðslur samkvæmt ákvæði þessu, m.a. um sex mánaða búsetuskilyrði.“

Með stoð í 3. málsl. 3. mgr. nefndrar 10. gr. hefur ráðherra sett reglugerð nr. 170/2009 um styrki og uppbætur til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða. Í 3. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar segir að með líkamlegri hreyfihömlun sé átt við sjúkdóm eða fötlun sem skerði verulega færni til að komast ferða sinna þannig að göngugeta sé að jafnaði minni en 400 metrar á jafnsléttu. Þar sé fyrst og fremst um að ræða:

„a. lömun eða skertan hreyfanleika í ganglimum af völdum sjúkdóms eða fötlunar,

b. mæði vegna hjarta- eða lungnasjúkdóma,

c. annað sambærilegt.“

Samkvæmt 2. tölul. 2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar er það skilyrði fyrir veitingu uppbótar til bifreiðakaupa að nauðsyn á bifreið vegna hreyfihömlunar sé ótvíræð og að mat á hreyfihömlun liggi fyrir. Þá er í 4. gr. reglugerðarinnar að finna skilyrði sem uppfylla þarf til að Tryggingastofnun ríkisins sé heimilt að greiða styrk til kaupa á bifreið. Í 2. mgr. þeirrar greinar koma eftirtalin skilyrði fram:

„1. Hinn hreyfihamlaði hefur sjálfur ökuréttindi eða annar heimilismaður.

2. Nauðsyn á bifreið vegna hreyfihömlunar er ótvíræð og mat á hreyfihömlun liggur fyrir.

3. Einstaklingur er verulega hreyfihamlaður og er til dæmis bundinn hjólastól og/eða notar tvær hækjur að staðaldri.

4. Mat á ökuhæfni liggur fyrir.

5. Hinn hreyfihamlaði er sjúkratryggður hér á landi, sbr. 10. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar.“

Í máli þessu liggur fyrir að Tryggingastofnun ríkisins hefur samþykkt að veita kæranda uppbót til bifreiðakaupa samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 170/2009. Kærandi óskar eftir hærri upphæð en samþykkt hefur verið og úrskurðarnefndin telur því að kærandi óski eftir að fá greiddan styrk til bifreiðakaupa, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 170/2009. Ágreiningsefnið snýst um það hvort skilyrði 3. tölul. 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar um að einstaklingur þurfi að vera verulega hreyfihamlaður, til dæmis bundinn hjólastól og/eða noti tvær hækjur að staðaldri, sé uppfyllt í tilviki kæranda. Að mati úrskurðarnefndarinnar leiðir af orðalagi reglugerðarákvæðisins að við mat á því hvort einstaklingur uppfylli skilyrðið um að teljast verulega hreyfihamlaður sé horft til þess hvort viðkomandi sé bundinn hjólastól og/eða þurfi að notast við tvær hækjur að staðaldri. Upptalning á hjálpartækjum sé þannig tiltekin í dæmaskyni til skýringar á því hvað við sé átt með verulegri hreyfihömlun. Sú túlkun er einnig í samræmi við orðalag 3. mgr. 10. gr. laga um félagslega aðstoð en þar er veiting styrks til bifreiðakaupa ekki bundin því skilyrði að umsækjandi þurfi að nýta sér hjálpartæki. Það er því ekki fortakslaust skilyrði fyrir veitingu bifreiðastyrks að umsækjandi sé bundinn hjólastól eða noti tvær hækjur að staðaldri. Hins vegar leiðir, að mati úrskurðarnefndarinnar, af orðalagi reglugerðarákvæðsins að viðkomandi verði að vera hreyfihamlaður til jafns við þá sem hafa þörf fyrir framangreind hjálpartæki að staðaldri.

Við mat á því hvort skilyrði um verulega hreyfihömlun sé uppfyllt þarf að fara fram einstaklingsbundið mat í hverju tilviki fyrir sig. Fyrir liggur læknisvottorð B, dags. 30. janúar 2020, þar sem fram kemur að sjúkdómsgreining kæranda sé „Arthritis rheumatoides, seropositive“.

Um fyrra heilsufar kæranda segir í læknisvottorðinu:

„Hún er X ára gömul kona með RA. Hún hefur verið með bólgna úlnliði við skoðun, jákv. RF og anti-CCP […]. Hún er einnig með sögu um lifrarbólgu C og pos PPD berklapróf. Hún fékk upprætingarmeðferð við hepC með sofosbuvir/velpatasvir og leið vel á þeirri meðferð – nánast engir liðverkir. Hún telst læknuð af hepC en eftir að hún hætti á veirulyfjunum hafa liðverkir versnað. Hún hefur fengið meðferð með HCQ, methotrexate sem að hún hætti að taka vegna hækkunar LFTs og nú etanercept.“

Um núverandi ástand kæranda segir:

„[A] heur verið með viðvarandi einkenni, liðverkir og þreyta

Gert hefur færnimat á HAQ (Health Assessment Questionnairre) skala sem að metur líkamlega færni á skalanum 0 til 3, þar sem skorið 0 samrýmist fullri færni án nokkurra erfiðleika og skorið 3 samrýmist algerri færniskerðingu við athafnir daglegs lífs. Þann 26. desember 2016 skorar a 2.13 stig á HAQ. […] Ég met því líkamlega færni A verulega skerta.“

Úrskurðarnefnd velferðarmála, sem meðal annars er skipuð lækni, telur að ráðið verði af gögnum málsins að kærandi búi við skerta göngugetu. Af fyrrgreindu læknisvottorði B má ráða að kærandi notist ekki við hjálpartæki. Úrskurðarnefndin telur að ekki verði ráðið af sjúkdómsástandi kæranda að hún sé hreyfihömluð til jafns við þá sem bundnir eru hjólastól eða háðir því að nota tvær hækjur að staðaldri. Með hliðsjón af framangreindu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að kærandi uppfylli ekki skilyrði 3. tölul. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 170/2009 um verulega hreyfihömlun. Afgreiðsla Tryggingastofnunar ríkisins frá 2. júlí 2020 á umsókn kæranda um uppbót/styrk til kaupa á bifreið er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Afgreiðsla Tryggingastofnunar ríkisins á umsókn A, um uppbót/styrk til kaupa á bifreið, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum