Hoppa yfir valmynd
27. maí 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Úthluta 40 milljónum króna í styrki til atvinnumála kvenna

Frá athöfninni í dag.  - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, úthlutaði í dag styrkjum til atvinnumála kvenna og fengu 44 verkefni styrki samtals að fjárhæð 40.000.000 kr. Styrkjunum var úthlutað við formlega athöfn í Hörpu.

Styrkjum til atvinnumála kvenna hefur verið úthlutað frá árinu 1991 og eru þeir ætlaðir frumkvöðlakonum eða fyrirtækjum í þeirra eigu. Skilyrði styrkveitinga eru þau að verkefnin séu í meirihlutaeigu kvenna, stjórnað af þeim og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.

Ekki er nauðsynlegt að vera með starfandi fyrirtæki til að sækja um styrk og því er heimilt að sækja um vegna verkefna á byrjunarstigi en einnig geta þær konur sótt um styrk sem eru að þróa nýjungar í starfandi fyrirtækjum. Unnt er að sækja um styrki vegna vinnu við gerð viðskiptaáætlunar, vegna markaðssetningar, vöruþróunar, hönnunar og vegna launakostnaðar en ekki eru veittir styrkir til framkvæmda eða vegna stofnkostnaðar.

Í ár bárust 300 umsóknir og hefur ráðgjafarnefnd metið þær á undanförnum vikum. Nefndina skipuðu þær Herdís Á. Sæmundardóttir, Guðrún Stella Gissurardóttir, Elín Gróa Karlsdóttir, Elín Sigríður Þórðardóttir og Kolbrún Ágústa Guðnadóttir.

Hæsta styrkinn í ár, 4.000.000 m.kr. fær Algina en verkefnið snýst um að rannsaka og meta eiginleika þangs sem nýtt er í framleiðslu á lífplasti undir merki Þaraplasts.  Þannig verða eiginleikar þangsins kortlagðir og skoðað hvernig uppruni þess getur haft áhrif á eiginleika lífsplastsins. 

Næsthæsta styrkinn, kr. 3.000.000 hlaut Sigríður Kristinsdóttir en verkefni hennar snýst um að koma nokkrum frumgerðum af lífplasti fyrir matvælapakkningar, unnu úr efnum í brúnþörungum, yfir á framleiðsluhæft form. 

Sérstakan hvatningarstyrk að upphæð kr. 1.000.000 hlaut Fæðingarheimili Reykjavíkur en þær munu leggja sérstaka áherslu á að sinna konum af erlendum uppruna í sinni þjónustu.

Af öðrum spennandi verkefnum má nefna fæðubótarefni með lifandi gerlum, vinnsla á rauðrófum, þróun ávaxtavíns, mjólkurvinnsla, ostrusvepparæktun, þróun á húðvörum úr hörpuskel, smáforrit til að aðstoða einstaklinga sem glíma við fíknisjúkdóma, framleiðsla á smáhýsum og ný aðferð við framleiðslu á fatnaði svo eitthvað sé nefnt.

Lista yfir verkefni sem hlutu styrk má finna á heimasíðu verkefnisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum