Hoppa yfir valmynd
9. desember 2019 Utanríkisráðuneytið

Íslendingar í sjötta sæti á nýjum lífskjaralista SÞ

Þrátt fyrir framfarir á heimsvísu í baráttunni gegn fátækt, hungri og sjúkdómum er ójöfnuður víða í heiminum sem setur til dæmis mark sitt á aðstæður ungu kynslóðarinnar, segir í nýrri skýrslu um lífskjaravísitölu Sameinuðu þjóðanna (HDI) sem birt var í morgun. Íslendingar eru í sjötta sæti skýrslunnar í ár, hafa hækkað um eitt sæti milli ára. Norðmenn eru í efsta sæti, þá Svisslendingar, Írar, Þjóðverjar og íbúar Hong Kong eru jafnir í fjórða sæti og Íslendingar og Ástralar í því sjötta.

Human Development Report (HDI) skýrsla Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) sýnir lífskjör eða lífsgæði íbúa heimsins. Í ár er sérstakri athygli beint að ójöfnuði í heiminum. Í skýrslunni segir að þótt munurinn í lífskjörum hafi minnkað hafi ójöfnuður tengdur menntun, tækni og loftslagsbreytingum leitt til mótmæla víðs vegar í heiminum.

Verði ekki brugðist við ójöfnuði gæti hann leitt til meiri sundrungar en þekkst hefur frá dögum iðnbyltingarinnar, segir í skýrslunni.

„Þessi skýrsla um þróun lífskjara sýnir hvernig kerfislegt misrétti skaðar samfélög okkar á djúpstæðan hátt og hvers vegna,“ sagði Achim Steiner framkvæmdastjóri UNDP þegar hann kynnti skýrsluna. „Ójöfnuður snýst ekki einungis um það hversu mikið einhver þénar í samanburði við aðra, heldur um ójafna dreifingu auðs og valds.“

Achim Steiner bætti við að ólíkar birtingarmyndir ójöfnuðar hefðu leitt til mótmæla á götum úti, hækkun farmiðaverða í lestir, verð á eldsneyti, kröfur um pólitískt frelsi, leit að sanngirni og réttlæti. „Þetta er hin nýja ásjóna ójöfnuðar,“ sagði hann.

Í botnsætum listans eru Níger, Miðafríkulýðveldið, Tjad, Suður-Súdan, Búrúndi, Malí, Eritrea, Búrkina Fasó, Síerra Leóne, Mósambík og Lýðstjórnarlýðveldið Kongó.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum