Hoppa yfir valmynd
18. október 2002 Utanríkisráðuneytið

Óvissuástand í kjölfar hryðjuverka í Indónesíu

Nr. 114

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu


Í tilefni óvissuástands sem skapast hefur í kjölfar hryðjuverka í Indónesíu, á Filippseyjum og á öðrum stöðum í Suðaustur-Asíu á undanförnum dögum vill utanríkisráðuneytið árétta mikilvægi þess að þeir Íslendingar sem þurfa að ferðast til þessara svæða á næstunni sýni fyllstu aðgát og fylgist grannt með þróun mála.

Mörg ríki hafa þegar gefið út sérstakar viðvaranir til þegna sinna vegna ferðalaga til þessara svæða.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 18. október 2002


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum