Hoppa yfir valmynd
12. mars 2010 Heilbrigðisráðuneytið

Frumvarp um gjafaegg samþykkt í ríkisstjórn

Ríkisstjórn samþykkti á fundi sínum í morgun frumvarp Álfheiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra til laga um gjafaegg. Í frumvarpinu er lagt til að einhleypum konum sem búa við skerta frjósemi verði heimilt að nota bæði gjafaegg og gjafasæði við glasafrjóvgun. Sama mun gilda um pör af sitt hvoru eða sama kyni, þar sem frjósemi beggja maka er skert.

Frumvarpinu er ætlað að breyta núgildandi lög nr. 55/1996 um tæknifrjóvgun, þar sem ekki hefur verið heimilt að nota gjafaeggfrumu við glasafrjóvgun einhleyprar konu. Verður frumvarpið nú sent þingflokkum stjórnarflokkanna og því næst lagt fyrir Alþingi.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum