Hoppa yfir valmynd
10. maí 2022 Innviðaráðuneytið

Aðalsteinn Þorsteinsson skipaður skrifstofustjóri sveitarfélaga og byggðamála

Innviðaráðherra hefur skipað Aðalstein Þorsteinsson í embætti skrifstofustjóra sveitarfélaga og byggðamála hjá innviðaráðuneytinu.

Aðalsteinn var valinn úr hópi margra hæfra umsækjenda að fengnum tillögum frá ráðgefandi hæfnisnefnd. Hann mun taka við embættinu frá og með 1. júní næstkomandi.

Aðalsteinn hefur starfað sem forstjóri Byggðastofnunar frá árinu 2002. Á þeim tíma hefur hann leitt stofnunina í gegnum umtalsverðar breytingar með farsælum hætti og náð góðum árangri. Að beiðni ráðherra tók hann tímabundið við starfi forstjóra Þjóðskrár Íslands og hefur gegnt því embætti frá því 1. febrúar síðastliðinn.

Aðalsteinn er lögfræðingur að mennt og lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1993. Hann hefur jafnframt lokið námi í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í opinberum rekstri frá sama skóla.

Settur forstjóri Byggðastofnunar, Arnar Már Elíasson, mun áfram sinna því starfi þar til ráðinn verður nýr forstjóri. Staðan verður auglýst innan skamms.

Jafnframt verður Hildur Ragnars sett tímabundið forstjóri Þjóðskrár Íslands til 1. ágúst næstkomandi. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum