Hoppa yfir valmynd
15. nóvember 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 412/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 412/2023

Miðvikudaginn 15. nóvember 2023

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 27. ágúst 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins 23. maí 2023 um endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2022.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2022. Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2022 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 85.194. kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 23. maí 2023. Kærandi sendi 25. júlí 2023 Tryggingastofnun erindi í gegnum „Mínar síður“ þar sem sagði að hann kærði skuld stofnunarinnar. Tryggingastofnun ríkisins svaraði erindi kæranda með tölvupósti 27. júlí 2023.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 27. ágúst 2023. Með bréfi, dags. 26. september 2023, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 17. október 2023, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. október 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi hafi greitt skatta af sölu af verðbréfi eins og allir þurfi að gera en hann telji ólöglegt að láta hann borga það aftur til Tryggingastofnunar. Kæranda sé mismunað þar sem aðrir sem ekki séu á eftirlaunum þurfi ekki að endurgreiða hagnað af sölu verðbréfa eins og hann hafi verið látinn gera.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kæra varði uppgjör þar sem kærandi hafi verið krafinn um 85.194 kr., sbr. innheimtubréf, dags. 23. maí 2023.

Um útreikning ellilífeyris hafi verið fjallað í III. kafla laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Í 16. gr. þágildandi laga um almannatryggingar hafi verið kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skyldi standa að útreikningi bóta.

Samkvæmt 16. gr. þágildandi laga um almannatryggingar hafi Tryggingastofnun borið að líta til tekna við útreikning bóta, meðal annars ellilífeyris, sbr. 21. og 33. gr. núgildandi laga um almannatryggingar. Í 2. mgr. sömu greinar hafi komið fram að til tekna samkvæmt III. kafla laganna teldust tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teldist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum, sbr. 22. gr. núgildandi laga um almannatryggingar. Samkvæmt 1. mgr. 23. gr. þágildandi laga um almannatryggingar lækki ellilífeyrir um 45% af tekjum lífeyrisþegans, sbr. 16. gr., uns lífeyririnn falli niður, sbr. 21. gr. núgildandi laga um almannatryggingar.

Kærandi hafi þegið ellilífeyri frá 1. október 2021. Með bréfi, dags. 23. maí 2023, hafi kæranda verið tilkynnt niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna ársins 2022. Niðurstaðan hafi verið skuld að upphæð 85.194 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu, þar sem heildargreiðslur til kæranda á árinu 2022 hafi numið hærri upphæð en kærandi hafi átt rétt á samkvæmt endanlegum upplýsingum skattyfirvalda um tekjur kæranda á árinu 2022 í skattframtali ársins 2023. Þennan mismun megi rekja til vanáætlunar fjármagnstekna.

Tekjuáætlun kæranda fyrir árið 2022 hafi ekki gert ráð fyrir fjármagnstekjum, en samkvæmt skattframtali hafi þær reynst vera 141.509 kr.

Kærandi hafi ekki andmælt með formlegum hætti niðurstöðu endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna ársins 2022, eins og hægt hefði verið að gera samkvæmt leiðbeiningum í uppgjörsbréfi, en hafi sent fyrirspurn í gegnum vef Tryggingastofnunar 25. júlí 2023, sem hafi verið svo hljóðandi: „Vil byrja á að kæra þessa svonefnda skuld sem þið eruð að setja á mig. Ég er algerlega 100% að þetta er ólöglegt að stela af mér eftirlaunum mínum sem ég er búinn að borga fyrir alla mína æfi. Einn góðan dag verður þetta athæfi ykkar dæmt ólöglegt.“ Fyrirspurninni hafi verið svarað af hálfu Tryggingastofnunar.

Samkvæmt framangreindu hafi fjármagnstekjur kæranda reynst vera hærri árið 2022 en gert hafi verið ráð fyrir í tekjuáætlun og hafi þær leitt til ofgreiðslukrafna. Eins og hafi komið fram þá séu fjármagnstekjur tekjustofn sem hafi áhrif á ellilífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, sbr. 2. mgr. 16. gr. þágildandi laga um almannatryggingar, sbr. 22. gr. núgildandi laga, og C-lið 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.

Málsástæður Tryggingastofnunar hafi komið fram í svarbréfi við framangreindri fyrirspurn kæranda.

Að öllu framangreindu virtu sé það niðurstaða Tryggingastofnunar að endurreikningur og uppgjör tekjutengdra greiðslna kæranda vegna ársins 2022 hafi verið réttur, byggður á fyrirliggjandi gögnum, faglegum sjónarmiðum sem og í samræmi við þær kröfur sem gerðar séu samkvæmt gildandi lögum og reglum. Tryggingastofnun fari fram á að niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra greiðslna verði staðfest fyrir nefndinni.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2022.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála, skal kæra til úrskurðarnefndar vera skrifleg og skal hún borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun.

Í máli þessu er kærð ákvörðun, dags. 23. maí 2023. Kærandi sendi 25. júlí 2023 kæru vegna þeirrar ákvörðunar í gegnum „Mínar síður“ til Tryggingastofnunar ríkisins. Stofnunin framsendi ekki kæruna til úrskurðarnefndar velferðarmála heldur svaraði erindinu með leiðbeiningum. Rúmlega þrír mánuðir liðu frá því að kæranda var tilkynnt um hina kærðu ákvörðun 23. maí 2023 þar til ný kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 27. ágúst 2023. Kærufrestur samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga um almannatryggingar var því liðinn þegar kæran barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga um úrskurðarnefnd velferðarmála er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum barst Tryggingastofnun kæra frá kæranda innan lögboðins kærufrests. Samkvæmt 2. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga ber stjórnvaldi sem berst skriflegt erindi, sem ekki snertir starfssvið þess, að framsenda erindið á réttan stað svo fljótt sem unnt er. Með vísun til 2. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga bar Tryggingastofnun ríkisins því að framsenda nefndinni erindi kæranda. Fyrir liggur að hefði kæran verið framsend hefði hún borist nefndinni innan kærufrests. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er því afsakanlegt að kæra hafi ekki borist fyrr, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, og verður hún því tekin til efnislegrar meðferðar.

Kærandi fékk greiddan ellilífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins allt árið 2022. Samkvæmt þágildandi 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í þágildandi 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í þágildandi 2. mgr. ákvæðisins segir að til tekna samkvæmt III. kafla skuli telja tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með tilteknum undantekningum. Samkvæmt þágildandi 1. mgr. 23. gr. laga um almannatryggingar skal ellilífeyrir lækka um 45% af tekjum lífeyrisþegans, sbr. þágildandi 16. gr., uns lífeyririnn fellur niður. Þá segir að ellilífeyrisþegi skuli hafa 300.000 kr. almennt frítekjumark við útreikning ellilífeyris og 1.200.000 kr. sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna.

Á grundvelli 3. mgr. 33.gr. laga um almannatryggingar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Ef í ljós kemur við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 34. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Samkvæmt gögnum málsins staðfesti Tryggingastofnun þann 16. desember 2023 innsenda tekjuáætlun kæranda vegna ársins 2022. Í ætluninni var gert ráð fyrir 1.004.847 kr. í lífeyrissjóðstekjur á árinu. Í kjölfar samtímaeftirlits Tryggingastofnunar við staðgreiðsluskrá kom í ljós að tekjur kæranda reyndust hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlun. Var í kjölfarið útbúin ný tekjuáætlun sem kæranda var upplýstur um með bréfi, dags. 10. mars 2023. Þar var gert ráð fyrir 6.787.932 kr. í launatekjur, 271.512 kr. í iðgjald til frádráttar og 1.310.916 kr. í lífeyrissjóðstekjur. Í framangreindu bréfi var kærandi upplýstur um áætlaða kröfu að fjárhæð 421.667 kr. Bótaréttindi kæranda voru reiknuð á ný út frá þessum tekjuforsendum. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 28. mars 2023, var staðfest ný tekjuáætlun frá kæranda þar sem gert var ráð fyrir 565.661 kr. í launatekjur, 22.632 kr. í iðgjald til frádráttar og óbreyttum lífeyrissjóðstekjum. Kærandi var upplýstur í framangreindu bréfi um inneign að fjárhæð 19.003 kr. Engar frekari breytingar voru gerðar á tekjuáætlun kæranda og voru greiðslur ársins greiddar út frá framangreindum tekjuforsendum.

Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2022 reyndust tekjur kæranda á árinu vera 565.661 kr. í launatekjur, 1.372.339 í lífeyrissjóðstekjur, 1.371.847 kr. úr séreignarsjóði og 141.509 kr. í fjármagnstekjur, n.t.t. 8.926 kr. í vexti og verðbætur, 14.559 í arð og 118.024 kr. í söluhagnað. Niðurstaða endurreiknings Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins var sú að kærandi hefði fengið ofgreiddar bætur samtals að fjárhæð 85.194 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kærandi hefur verið krafinn um endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar.

Samkvæmt framangreindu reyndust fjármagnstekjur og lífeyrissjóðstekjur kæranda á árinu 2022 vera hærri en gert hafði verið ráð fyrir í tekjuáætlun og leiddu til ofgreiðslu. Fjármagnstekjur og lífeyrissjóðstekjur eru tekjustofnar sem hafa áhrif á bótarétt samkvæmt lögum um almannatryggingar, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og 1. tölul. A-liðar og C-lið 7. gr. laga um tekjuskatt. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur. Í kæru eru gerðar athugasemdir við söluhagnaður kæranda hafi áhrif á ellilífeyri en slíkar tekjur hafi ekki áhrif á þá sem ekki séu með ellilífeyri. Engin heimild er í lögum að líta fram hjá fjármagnstekjum við endurreikning með vísan til framangreindra sjónarmiða.

Að öllu framangreindu virtu er niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum kæranda á árinu 2022.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2022, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum