Hoppa yfir valmynd
8. október 2023 Utanríkisráðuneytið

Íslendingar í Ísrael verða sóttir

Utanríkisráðuneytið - mynd
Utanríkisráðherra hefur ákveðið að senda farþegaflugvél á vegum íslenska ríkisins til Ísraels. Henni er ætlað að ferja heim um 120 Íslendinga sem þar eru strandaglópar vegna ófriðarástandsins í landinu en það hefur sett allar samgöngur úr skorðum. 

Gert er ráð fyrir að vélin fari frá Tel Aviv klukkan 09:10 að staðartíma í fyrramálið og farþegar verði komnir til Íslands um miðjan dag á morgun. Áætlunin er gerð með þeim fyrirvara að verði breytingar á stöðunni í Ísrael, mun framkvæmdin taka mið af því.

Ísland hyggst bjóða Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum laus sæti í vélinni sem ekki nýtast fyrir íslenska ríkisborgara.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum