Hoppa yfir valmynd
6. febrúar 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Stjórnunar- og verndaráætlun Kirkjugólfs staðfest

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra staðfestir stjórnunar- og verndaráætlun náttúruvættisins Kirkjugólfs. - mynd

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra staðfesti í dag stjórnunar- og verndaráætlun náttúruvættisins Kirkjugólfs.

Kirkjugólfið á Kirkjubæjarklaustri var friðlýst sem náttúruvætti árið 1987.  Það er lág jökul- og brimsorfin stuðlabergsklöpp þar sem endar lóðréttra stuðlabergssúlna ná upp úr jörðu  og mynda um 80 fermetra slétt gólf. Landvættirnir á skjaldarmerki íslands standa á stuðlabergshellu líkt og Kirkjugólf.

Kirkjugólf hefur jarðfræði- og sögulegt verndargildi, sem og fræðslugildi og var við gerð áætlunarinnar bætt við reglu varðandi kvikmyndatöku og ljósmyndun, svo og um næturgistingu sem er óheimil innan verndarsvæðisins. Til að viðhalda verndargildi Kirkjugólfs skal þess enn fremur gætt að framkvæmdir og ágangur rýri ekki gildi svæðisins. Þá hefur almenningi verið tryggður aðgangur að Kirkjugólfinu með göngustíg sem lagður var frá bílastæði við Geirlandsveg, en einnig er unnt að nýta sér gönguleiðir frá þorpinu.

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Í stjórnunar- og verndaráætluninni eru kynntar leiðir til að tryggja að markmið friðlýsingarinnar nái fram að ganga. Mikilvægt er að varðveita stuðlaberg náttúruvættisins Kirkjugólfs og þá sérstöku ásýnd sem svæðið hefur. Einnig þarf þó að tryggja gott aðgengi að svæðinu, svo að sem flestir fái notið.“

  • Kirkjugólf, Kirkjubæjarklaustri. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum