Hoppa yfir valmynd
22. júní 2021 Utanríkisráðuneytið

Gíneá-Bissá: Styrkur til könnunar á skapandi listgreinum í atvinnuskyni

Super Mama Djombo á tónleikum í Bissá. - mynd

Utanríkisráðuneytið hefur veitt íslenska fyrirtækinu T16 ehf. tveggja milljóna króna styrktarsamning til að vinna forkönnun á vaxtarmöguleikum skapandi greina í Gíneu-Bissá. Í verkefinu verður unnið með tónlistarmönnum og öðrum listamönnum til að greina möguleika skapandi listgreina í þeim tilgangi að fjölga atvinnutækifærum listamanna í landinu.

Að sögn Geirs Gunnlaugssonar hjá T16 efh. gætu slík tækifæri falist í kennslu listgreina í skólum, tónlistarsköpun, upptökustjórnun, leiklist, hönnun eða í öðrum listgreinum. „Verkefnið mun einnig fylgja eftir og styrkja fyrirliggjandi hugmyndir um Miðstöð skapandi greina í Bissá og aðkomu listamanna að þróun hennar, en íslenskir arkitektar hafa lagt fram fyrstu drög að teikningum miðstöðvarinnar. Forkönnunin skapar því möguleika fyrir hagsmunaaðila að undirbúa stærra verkefni til stuðnings skapandi greinum í landinu,“ segir Geir.

Samstarfsaðilar í verkefninu hafa að sögn Geirs verið virkir í tónlistarlífi Gíneu-Bissá allt frá sjálfstæði 1974 og markað djúp spor í tónlistarsögu þess sem meðlimir í hljómsveitinni Super Mama Djombo. „Aðrir eru ungir listamenn sem hafa verið að hasla sér völl á síðustu árum. Mikilvægt framlag verkefnisins er því að styðja við skapandi greinar á tímamótum þegar hljómsveitin og lýðveldið Gínea-Bissá halda upp á hálfrar aldar afmæli sitt,“ segir hann.

Myndin hér að ofan var tekin á tónleikum í Bissá í júlí 2009 með tveimur helstu ungu tónlistamönnum landsins á tónleikum Super Mama Djombo í Bissá, þ.e. Binhan og Karyna, en þeir eru meðal samstarfsfólks í verkefninu. Bak við þau er áletrun á stórum borða með þjóðfánum Íslands og Gíneu-Bissá og áletruninni: Lengi lifi vinátta Gíneu-Bissá og Íslands.

Styrkurinn er veittur úr Samstarfssjóði við atvinnulíf um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

8. Góð atvinna og hagvöxtur
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum